Kirkjuritið - 01.09.1951, Qupperneq 66
232
KIRKJURITIÐ
SkútustaSir. Vlöihólssókn mun nú vera jafnauðvelt að þjóna það-
an sem frá Skinnastað. Er þessi breyting gjörð til þess að Skinna-
staðarprestakall verði ekki eins erfitt og áður.
Húsavík. Auðveldara mun að þjóna Brettingsstaðasókn frá Húsa-
vík en Hálsi, enda er mestallur söfnuðurinn í Flatey og líklegt,
að kirkjan flytjist innan skamms þangað frá Brettingsstöðum. Að
vísu eru um 15 sjómílur frá Húsavík til Flateyjar, og myndi verða
að greiða Húsavíkurpresti nokkurn ferðakostnað auk lögboðins emb-
ættiskostnaðar. Kemur því mjög til álita, hvort ekki sé réttast að
gjöra Brettingsstaðasókn að skólaprestakalli með prestssetri í Flatey-
SauÖanes. Svalbarðssókn er auðveldara að þjóna frá Sauðanesi
en Raufarhöfn, sem getur þá orðið skólaprestakall.
Um breytingar á prestssetrum skal enn fremur tekið fram:
EiSar í staö Kirkjubœjar. Sbr. það, er fyrr greinir. Enn fremur
má geta þess, að endurbyggja þyrfti öll staðarhús á Kirkjubæ, ef
þar yrði prestssetur áfram.
Prestsbakki á Síöu l staö Kirkjubæjarklausturs. Á Prestsbakka
eru frábær ræktunarskilyrði, og getur hann orðið ágætasta höfuð-
ból, ef jörðin er vel setin. Að vísu hefir prestsseturshús verið reist
að Kirkjubæjarklaustri, en það mun nú mega selja sæmilegu verði.
Andvirðinu yrði að sjálfsögðu varið til húsabóta á Prestsbakka.
Mun bæði söfnuður og prestur óska þess eindregið, að þetta gamla
prestssetur verði hafið til vegs þess, er þvi ber.
Kirkjuhvoll l staö Kálfholts. Presturinn í Kálfholtsprestakalli
hefir um allmörg ár setið á Kirkjuhvoli i Þykkvabæ. Hefir þar verið
reist yfir hann allsæmilegt hús, enda er þar mest þéttbýli og fjöl'
menni i sóknum hans. Hins vegar eru öll hús I Kálfholti mjög hrör-
leg og þyrftu bráðrar endurreisnar við, ef prestur ætti að flytjast
þangað. Kálfholt er að visu mikil jörð, að landrými til, en erfið til
ábúðar, eins og nú er. Ef hún er seld og andvirðið notað til að fa
land fyrir prestinn á Kirkjuhvoli og reisa þar peningshús, ætti Kirkju-
hvoll að geta orðið mjög sómsamlegt prestssetur án verulegra út-
gjalda frá hinu opinbera.
Skálhdlt i staö TorfastaÖa. Helzt til lengi hefir Skálholt verið
annexía og í niðurníðslu, og krefst nú þjóðin þess, að staðurinn
verði endurreistur. Einn liður i þeirri viðreisn á að vera sá, að þar
komi prestur, og gegni hann öllu Torfastaðaprestakalli sem áður var.
Verði Torfastaðir seldir og andvirði þeirra varið til húsbyggingar
í Skálholti. Þetta er einnig I samræmi við það, sem þegar hefir ver-
ið ákveðið um Hóla I Hjaltadal.
Hverageröi i staö Arnarbœlis. Alimörg undanfarin ár hefir prest-
urinn setið í Hveragerði sökum þess, að þar er safnaðarfólk hans
flest. Má ætla, að svo muni einnig eftirmenn hans kjósa. Fyrir ÞyJ
leggur nefndin það til, að Hveragerði verði prestssetur, enda Þótr
hún sjái eftir prestssetrinu Arnarbæli. Vel gæti komið til mála, ao
presturinn sæti í nýbýlahverfinu undir Ingólfsfjalli.
Suöureyri í staö Staöar í Súgandafiröi. Þar eð prestakallið verð-
ur skólaprestakall og mestur hluti safnaðarfólksins er á Suðureýrt,
virðist eðlilegast, að prestssetrið flytjist þangað.
Hólmavík í staö StaÖar i SteingrímsfirÖi. Allmörg hin siðari árin
hefir presturinn setið á Hólmavík, þar sem mikill hluti safnaðarfólk^
hans á heima, og má ætla, að svo kjósi einnig eftirmenn hans í fram-