Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.09.1951, Síða 68

Kirkjuritið - 01.09.1951, Síða 68
234 KIRKJURITIÐ leggur til (skólaprestaköll). Þar sem svo mörg börn eru, aö tvo kennara þarf, er ætlazt til, að prestur gegni kennarastarfi, en ann- ar sé skólastjóri. Ekki virtist ósanngjarnt, að kennsluskylda prests væri nokkru minni á þeim stöðum en venjulegs kennara, þar sem fólksfjöldi í því kalli mundi vera allmikill, og starf prestsins af þeim sökum meira. I mjög fámennum prestaköllum gæti presturinn aftur á móti séð um öll störf kennara. Æskilegt væri, að fyrir því væri séð um leið og prestsseturshús eru reist, að prestur geti tekið börn heim til sín á vetrum, þar sem ætlazt er til að hann hafi kennslu á hendi. Prestar, sem kennslu ættu að hafa jafnframt, mundu verða að fá nokkurn sérstakan undirbúning í því skyni. Er gert ráð fyrir. að þeir fullnægi þeim skilyrðum, sem lög um menntun kennara setja þar um. Ef þessi ákvæði verða að lögum, leiðir af því, að ekki munu aðrir sækja um skólaprestaköll en þeir, sem fúsir eru til þess að taka að sér bæði störfin og hlutgengir eru til þess. Ekki mundi prestur í sliku prestakalli heldur síðar geta afsaiað sér öðru starfinu, en haldið hinu. Á sama hátt mætti yfirstjórn fræðslu- málanna ekki heldur ráðstafa til frambúðar kennarastarfi á slíkurn stöðum, þótt prestlaust yrði um sinn. Skrifstofur fræðslumálastjóra og biskups hafa reiknað, hversu mikið fé muni sparast á þessu fyrirkomulagi miðað við greiðslur árið 1950, og er það alls kr. 158.665,62. Um 7. gr. Erlendis hefir það reynzt mjög hagkvæmt að hafa slíka aðstoðar- presta; og hér á landi er þeirra alveg sérstök þörf vegna þess, hve örðugt er hér viða sökum staðhátta að láta nágrannapresta gegna þjónustu í prestslausum prestaköllum. Prestar þessir gætu einnig starfað m. a. um skeið bæði við sjúkrahús og fangelsi. Um 8. gr. Slík ráðstöfun er sanngirnis- og réttlætismál. Um 9. gr. Greinin er tekin upp orðrétt að mestu úr lögum nr. 45, 16. nov. 1907. Um 10. gr. Ákvæði þessarar greinar eru sett til þess að auðvelda sóknar- skiptingu þar sem hennar gerist þörf. Um 11. gr. Þess eru dæmi, að sóknir hafa gjöreyðzt að fólki, en í nokkrurn sóknum öðrum er þegar svo komið vegna fólksfæðar, að eigi er unnt að hafa þar starfandi sóknarnefndir og tekjur kirkju hrökkva engan veginn fyrir óhjákvæmilegum gjöldum. Liggur þá beinast við. að svo verði gjört, sem segir í greininni. Um 12. gr. . Nokkurar þessara breytinga munu geta komizt á umsvifalausn Til annarra mun þurfa samþykki hlutaðeigandi presta. Fáist Þa° ekki, verða þær að biða prestaskipta.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.