Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.09.1951, Page 70

Kirkjuritið - 01.09.1951, Page 70
Góðtemplarareglan 100 ára. Á þessu sumri átti Alþjóðaregla Góðtemplara (I.O.G.T.) aldarafmæli. Hún er stofnuð í borginni Utica í Bandaríkj- unum í öndverðum júlímánuði 1851. Telja má, að Góðtemplarareglan eigi sér tvennar rætur. Annars vegar er hún sprottin upp af eldri reglufélögum, er starfa eftir föstum formum og siðum, lokuð öðrum en meðlimum sínum, hins vegar er hún runnin af almennri bindindishreyfingu, er stefnir að því að vinna gegn nautn áfengra drykkja. Reglufélagsskapinn má aftur rekja langt aftur í aldir, allt aftur til hinna fornu launhelga meðal Grikkja og jafn- vel Egypta og sennilega líka til Essea og Rekabíta meðal Hebrea. Bindindishreyfingin átti sér einnig stoð í þeim fomu bræðralögum, en á seinni öldum gætir hennar mest innan sumra kristinna sértrúarflokka, eins og meðal Kvek- ara og Púrítananna brezku, sem tóku sér bólfestu á aust- urströnd Norður-Ameríku. Úr hópi þeirra kom einnig fram sá maður, sem talinn hefir verið faðir bindindis- hreyfingar nútímans, dr. Benjamín Rush, læknir og mikils- virtur forvígismaður í frelsisbaráttu Bandaríkjanna á síð- ari helmingi 18. aldarinnar. Fyrir áhrif hans óx bindindishreyfingunni mjög fylg* í Bandaríkjunum fyrir og eftir næstsíðustu aldamót. Árið 1826 er svo komið, að stofnað er samband bindindisfé- laga um alla Norður-Ameríku, fjölmennt og áhrifamikið. Jarðvegurinn var þannig vel búinn undir stofnun Góð- templarareglunnar, þar sem einnig höfðu blómgazt ýros reglufélög í Bandaríkjunum næstu áratugina fyrir stofn-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.