Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.09.1951, Page 74

Kirkjuritið - 01.09.1951, Page 74
Samtíningur utan lands og innan. Fyrir nokkrum árum fengu prestar því til leiðar komið, að dagblöðin helguðu kirkju og kristindómi smávegis rúm um hverja helgi. Skiptu nokkrir prestar með sér verkum °S tóku að sér að rita þessar greinar fyrir blöðin, sem virtust fús til að birta þær, ekki síður en annað, sem að þeim barst. # En þessir „kirkjudálkar" dagblaðanna urðu ekki langlífir- Þeir féllu fljótlega niður. Hversvegna? Var það vegna ÞesS> að blöðin neituðu að halda þeim áfram? Margir kunna að halda það, því að ýmsir eru þeirrar skoðunar, að málgögn ver- aldlega valdsins séu yfirleitt andvíg því að birta kristilegar hugleiðingar og túlka hinn kirkjulega málstað. # Þessi var þó ekki ástæðan til þess, að kirkjudálkamir hættu. Sökin mun hafa verið kirkjunnar, en ekki „pressunnar", og er það að vissu leyti gott, þótt illt sé til afspurnar fyrir kenni- lýðinn. Ástæðan mun hafa verið sú, að önnum kafnir klerkar höfuðstaðarins og við, — værukærir og áhugalitlir bræður þeirra úti um land — við gáfumst upp á þessum skrifum, og ÞaU voru látin undir höfuð leggjast. * Nú eru þessi skrif að nokkru leyti hafin á nýjan leik, en ekki mun kirkjan hafa átt þar upptökin. Dagblaðið Tíminn hefir nú um misseris skeið birt á hverjum sunnudegi Þatt’ sem það nefnir „Vettvang kirkjunnar“. Tekur hann venjuleg3 kringum tvo dálka í blaðinu. Eru þar birtar hugleiðingur eftir íslenzka presta eða þýddar greinar úr erlendum bókum ei5a tímaritum. Auk þessa hefir Tíminn ósjaldan birt stólræður presta við ýms tækifæri, og í fleiru hefir blaðið sýnt, að Þa° er hlynnt kirkju og kristindómi. Mun þessi vinsamlega afstaða

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.