Kirkjuritið - 01.09.1951, Side 77
SAMTÍNINGUR
243
lætið í þjóðfélaginu er bara meðal, sem við notum“, segir hann.
..Kommúnismans bezta og mesta tækifæri er það, að mennimir
hafa tapað trúnni á Guð, og kommúnisminn fyllir það tóm í
sál mannsins, sem við það hefir myndazt. Kommúnisminn tek-
Ur við þar, sem kirkjan hefir misst tökin.“
G. Br.
Ferming í sjúkrahúsi.
Frekar mun það sjaldgæft, að fermt sé á sjúkrahúsum, en
það var gert á sjúkrahúsi Siglufjarðar 3. júní s.l. Stúlkan, sem
fermd var, heitir Hanna Sólveig Þorláksdóttir og hefir verið
sjúklingur á sjúkrahúsinu s.l. 5 ár, en þá varð hún fyrir mjög
alvarlegum meiðslum í umferðarslysi.
Sjúkrahúsið hefir því verið heimili hennar síðustu árin og
hefir yfirhjúkrunarkonan, frk. Elísabet Erlendsdóttir, reynzt
henni sem bezta móðir.
^egar bömin voru fermd í kirkjunni 6. maí s.l. vor, gat hún
ekki verið þar með þeim, en ákveðið var, að hún skyldi fermd
a sjúkrahúsinu nokkru síðar..
_ Fermingardagur Hönnu litlu var mikill og minnisstæður há-
tiðisdagur á sjúkrahúsinu. Kirkjukórinn kom og söng við ferm-
lnguna og altarisgönguna. Læknamir og hjúkrunarfólkið var
viðstatt og allur bærinn fylgdist með þessum fermingardegi,
engu síður en aðal-fermingardegi ársins. Hönnu bárust marg-
ar gjafir, frá einstaklingum og félögum, sem vildu gera henni
'tuginn minnisstæðan. Fermingarsystkini hennar gáfu henni
armbandsúr, skólastjóri og kennarar bamaskólans guítar, og
fleiri góðar gjafir bámst henni, og vinar- og kærleikshugur
Urnvafði hana þennan dag.
Mér sjálfum er þessi fermingarathöfn mjög minnisstæð, því
^anna litla var síðasta barnið, er ég fermdi í Siglufirði af
30 börnum, er ég fermdi þar.
Myndin, sem hér fylgir, var tekin á sjúkrahúsinu þennan
uainnisstæða fermingardag.