Kirkjuritið - 01.09.1951, Síða 79
Aðcdfundur Guðbrandsdeildar
Prestafélagsins.
Guðbrandsdeild, sem er deild í Prestafélagi Islands, hélt aðal-
fund sinn í Bólstaðarhlíð sunnudaginn 19. ágúst s.l. Deildin
nær yfir Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi, og voru
niættir á fundinum 8 prestar og prófastar. Fundurinn var að
Venju tvíþættur, annars vegar fundur presta, þar sem þeir
næddu félagsmál sín og kusu stjórn, en hins vegar almennur
fundur með sóknarmönnum. er fjölmenntu mjög, auk þess sem
ynisir sóttu hann úr öðrum sóknum prestakallsins.
Fundurinn hófst með guðsþjónustu. Séra Bjöm Bjömsson á
Vatnsleysu prédikaði og séra Gunnar Gíslason í Glaumbæ þjón-
aði fyrir altari, en stór og góður kirkjukór sóknarinnar söng
Undir stjóm kirkjuorganistans, Jón Tryggvasonar bónda í Ár-
túnum.
Að lokinni messtu settust allir kirkjugestir að kaffidrykkju
í boði prestshjónanna að Æsustöðum og safnaðarins í heild,
eu eftir það söfnuðust menn aftur í kirkjuna. Formaður deild-
arinnar, séra Gunnar Ámason á Æsustöðum, setti fundinn og
stjómaði honum. Hófust þá umræður um aðalmálefni fundar-
lns, sem var leikmannastarfsemi í söfnuðunum. Framsögu-
erindi flutti séra Helgi Konráðsson á Sauðárkróki og séra Þor-
steinn Gíslason prófastur í Steinnesi. Á eftir urðu síðan all-
uiiklar umræður um málið, og tóku ýmsir bændur prestakalls-
lns til máls, auk presta þeirra, sem mættir voru. Ríkti mikil
eining á fundinum, og mun öllum, sem þar voru, hafa þótt
Þetta góð samverustund. Inn í umræðumar komst prestafækk-
hnarmál það, sem nú er á döfinni, og í því sambandi var borin
UPP svohljóðandi tillaga, er samþykkt var með samhljóða at-
kvæðum:
-Fjölmennur fundur haldinn að Bólstaðarhlíð 19. ágúst 1951
tilhlutan Guðbrandsdeildar Prestafélags íslands mótmælir
f®kkun prestakalla á félagssvæðinu."
í fundarlokin flutti séra Guðbrandur Bjömsson prófastur í
^ofsós ávarp og bæn, en síðan sungu allir fundarmenn versið
S°n Guðs ertu með sanni.