Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.09.1951, Page 84

Kirkjuritið - 01.09.1951, Page 84
250 KIRKJURITIÐ Mörg kristniboðsfélög, og þar á meðal norska kristniboðs- félagið, hafa nú ákveðið að beina starfi sínu til Japan og koma þar upp kristniboðsstöðvum. Þessi ákvörðun var tekin á árs- þingi félagsins, er haldið var í Álasundi dagana 27. júní—■ 1. júlí síðastliðinn. Er nú þegar hafinn undirbúningur að kristniboðsstarfi í Jap- an og munu aðalstöðvar félagsins verða í borginni Osaka, en sú borg telur um 2 milljónir íbúa. Kirkjur sameinast. Fríkirkjur Kongregationalista og Presbyteriana ræða nú möguleikann á sameining þessara kirkjudeilda í Bretlandi. Ein slík einingarkirkja var nýlega vígð í Southampton. Innlendar íréttir. Séra Magnús Guðmundsson hefir verið skipaður prestur í ögurþingum að afstaðinni lög- mætri kosningu. Björn H. Jónsson kandídat í guðfræði hefir verið settur presur í Ámesi í Strandaprófastsdæmi- Hann var vígður sunnudaginn 8. júlí. Þórir Kr. Þórðarson guðfræðikandídat fór í sumar til Vesturheims til náms í Gamla testamentis fræðum. Embættisprðf í guðfræði. Þessir menn luku embættisprófi við guðfræðideild Háskól- ans 29. maí síðastliðinn: Bjöm H. Jónsson, n. einkimn betri, 134% stig, Magnús Guðjónsson, I. einkunn, 164% st. Þorbergur Kristjánsson, I. einkunn, 205% st., Þórir Kr. Þórðarson, I. einkunn, 194% st. Séra Óskar J. Þorláksson hefir verið kjörinn prestur við Dómkirkjuna í Reykjavík og fengið veitingu fyrir embættinu frá 1. júní að telja.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.