Kirkjuritið - 01.09.1951, Page 85
FRÉTTIR
251
Magnús Már Lárusson prófessor
hefir undanfarin misseri unnið að könnun handrita í Lands-
bókasafni og víðtækri rannsókn á bókmenntum siðaskiptaaldar.
M. a. hefir það vakið mikla athygli, að hann hefir fundið skinn-
blað úr Heiðarvígasögu, sem menn hugðu týnt öldum saman.
Vísindaleg nákvæmni og skarpskyggni Magnúsar prófessors
má teljast frábær á þessu sviði.
Prestskosning.
Séra Kristinn Róbertsson var kjörinn lögmætri kosningu
prestur á Siglufirði sunnudaginn 12. ágúst. Hefir hann nú
fengið veitingu fyrir prestakallinu.
MinningarguSsþjónusta f Saurbæ.
Sunnudaginn 26. ágúst var haldin hátíðarguðsþjónusta í
Saurbæ til minningar um komu HaUgríms Péturssonar þangað
fyrir þremur öldum. Biskup þjónaði fyrir altari og flutti ávarp,
séra Sigurjón prófastur Guðjónsson prédikaði og dr. Sigurður
Nordal prófessor hélt ræðu. Ávarp biskups er prentað í Kirkju-
blaði.
Kirkjuvígsla.
Sunnudaginn 9. sept. vígði biskupinn Búðakirkju á SnæfeUs-
nesi að viðstöddu f jölmenni.
Magnús Guðjónsson guðfræðikandídat
hefir hlotið styrk til þess að kynnast kirkjulífi Finna, menn-
ingu þeirra og sögu. Fór hann utan í lok septembermánaðar.
Skálholtshátíð.
Svo sem undanfarin sumur var haldin hátíð í Skálholti á
Þessu sumri nálægt Þorláksmessu, sunnudaginn 22. júlí. Hófst
hún með guðsþjónustu. Biskup og vígslubiskup Skálholtsbisk-
uPsdæmis þjónuðu fyrir altari, en vígslubiskup Hólastiftis pré-
dikaði. Eftir messu hófst útisamkoma, er formaður Skálholts-
félagsins byrjaði með ávarpi. Þá flutti Þorleifur Bjarnason
kennari snjallt og veigamikið erindi um Skálholt. Séra Helgi
Sveinsson flutti fögur ljóð, er hann hafði ort, Sigurður Skúla-
son magister talaði um Skálholtsstað og leikþáttur var sýndur.
Nm söng og hljóðfæraslátt önnuðust Þjóðkórinn og Lúðrasveit
Reykjavíkur.