Kirkjuritið - 01.01.1956, Side 20
10
KIRKJURITIÐ
Prestafélagið hefir frá upphafi haldið úti tímariti, fyrst ársriti
sínu, Prestafélagsritinu, í 16 ár og nú Kirkjuritinu í 21 ár eða
samtals 37 ár. Þó að félagið hefði ekkert annað starfað en þetta,
hefði það með því einu skapað sér tilverurétt. Og það má ekki
fyrir koma, að prestastéttin láti útgáfu tímarits falla niður né
rýrna á neinn liátt. Væri það og meira en meðal skömm, ef jafn-
fjölmenn stétt væri ekki megnug þess að standa undir því og
efla það andlega og efnalega, og mundi bitna harðast á þeirri
stétt sjálfri.
En það verða menn að gera sér ljóst, að hér er um verulegt
átak að ræða, og ef til vill meira en ýmsir gera sér grein fyrir.
Ritið kemur ekki út af sjálfu sér, og það er ekki unnt að gera
veg þess mikinn, nema með því að veita því tvöfaldan stuðning
eða að minnsta kosti annan af tvennu: Efla það að góðu efni eða
útbreiða það og borga skilvíslega. Velvakandi prestastétt hefir
gott kirkjurit, áhrifamikið bæði sakir efnis og útbreiðslu. Deyfð
yfir því er dómur um þessa stétt, sem vonandi kemur ekki fyrir.
Efling þess er einn af mörgum starfsháttum og ávöxtum lifandi
og þróttmikils kirkjustarfs. Vonandi fáum við að sjá þann ávöxt
þroskast á næstu árum.
Magnús Jónsson.
* í'C *
Mér er bæði Ijuft og skylt að þakka dr. Magnúsi Jónssyni
prófessor fyrir langt og gott samstarf í ritstjórn Kirkjuritsins.
Býð ég jafnframt séra Gunnar Arnason velkominn til samstarfs-
ins, sem mjög mun hvíla á herðum hans. Ber ég til hans bezta
traust. Efni til ritsins mun ég reyna að leggja til líkt og áður,
og vænti góðs stuðnings prestastéttarinnar og ýmissa annarra
sem fyrr.
Ásmunchtr Guðmundsson.