Kirkjuritið - 01.01.1956, Side 54
44
KIRKJURITIÐ
að halda áfram að granda því. Til þess að gera menn afhuga ofbeldi verð-
um vér að auðsýna það. Til öryggis réttinum til að lifa verðum vér að
saurga hann.“
A seinustu Grænlandsvertíð dvaldi norskur prestur um borð á einu
fiskiskipinu og útvarpaði þaðan reglubundnum guðsþjónustum til veiðiflot-
ans. Hann hvatti menn og til að sækja tíðir í Færeyingaliöfn, þegar þeir
affermdu þar aflann.
Laurence Bradshaw, sem mikið hefir unnið að kaþólskum kirkju-
skreytingum, hefir nú verið ráðinn til að gera voldugt minnismerki á gröf
Karls Marx í Hampstead. Rússneska sendiráðið í Lundúnum gengst fyrii
þessu. Anægjulegt tákn um alþjóðlegt gildi listarinnar.
Tékkneskir kirkjumenn heimsóttu mótmælendur í Vestur-Þýzkalandi
í vetrarbyrjun. Dr. Niemöller bauð þá velkomna við guðsþjónustu í Frank-
furt-am-Main. Varga, biskup í Slóvakíu, messaði í annarri kirkju þar í borg.
Otto Dibelius, Berlínarbiskup, fagnaði og gestum þessum. Slíkar liéimsókn-
ir eru ekki aðeins vel til þess fallnar að auka þekkingu manna og eyða ýmiss
konar misskilningi, heldur er og ætlandi, að engir séu betur færir um að
bera 'friðarorð milli þjóðanna en kristnir leiðtogar.
Talið er, að í Bandaríkjumnn séu 35,3 af hundraði mótmælendur, en
20 af hundraði kaþólskir. Samsvarandi tölur árið 1940 voru 28,7 af hundr-
aði og 16,1 af hundraði.
Til eru munka- Og nunnureglur innan ensku kirkjunnar. Ein af þeim
er Regla heilags Jóhannesar guðspjaUanmnns. R. M. Benson og tveir félagar
hans stofnuðu munklífi þetta 1866. Höfuðstöðvar þess eru í Oxford. Þetta
er allstrangur lifnaður, enda talið að aðeins þriðji hver maður, sem byrjar
tveggja ára reynzlutímann, endist til að vinna lokaheitið. Reglubræðurnir
eru sumir prestvígðir og auk mikils bænahalds og reglubundinna fastna
sinna þeir alhniklum sálgæzlustörfum. Vinna og að líknarmálum og upp-
fræðslu æskulýðsins. Þeir hafa líka rekið trúboð í Suður-Afríku og Indlandi.
Hinn kunni prestur C. O. Rhodes segir: „Það er mikið hægt að læra af
sálarjafnvægi þeirra og sjálfsafneitun.“