Kirkjuritið - 01.01.1956, Blaðsíða 57
INNLENDAR FRETTIR
47
Bræðralag, kristilegt félag stúdenta, hefir eins og áður sent Jólakveðju,
smárit, til skólabarna á Islandi. I henni eru ljóð, greinar og sögur. Eintaka-
fjöldi er 20000. Félagsprentsmiðjan prentaði, og er allur frágangur liinn
bezti.
Séra Robert Jack er nú kominn heim frá Ameríku og tekinn við
Tjarnarprestakalli á Vatnsnesi. Eins og sézt á ritdómi séra V. E., hefir séra
Robert skrifað skemmtilega bók um dvöl sína í Grímsey, en ekki mun
hún hafa borizt hingað í bókaverzlanir enn. Mun þó ýmsum leika nokkur
forvitni á að lesa hana.
Sigurður Olafsson, lögfræðingur, skrifar mjög athyglisverða grein í
jólablað Tímans um skírnarfont Thorvaldsens í Reykjavíkurdómkirkju. I grein
þessari leiðir Sigurður, að því er v.irðist, óyggjanleg rök að því, að hinn upp-
haflegi skírnarfontur, sem Thorvaldsen ánafnaði íslandi sé nú, eftir mikla
hrakninga, korninn í Heilagsandakirkju í Kaupmannahöfn. Mætti ætla, að
ver fáum liann því endurheimtan, og geti þá sá, er vér eigum nú, farið
til Miklabæjarkirkju í ættbyggð Tliorvaldsens, sem 'sanngjarnt má telja.
hirkjuritið mun að sjálfsögðu segja síðar nánar frá máli þessu.
Ríkisútvarpið varð 25 ára 20. f. m. Þ\ í verður ekki neitað, að það er
nú einn áhrifamesti skapandi þjóðmenningarinnar, og mörgum hefir það
skenunt síðastliðna áratugi. Og það hefir flutt boðskap kirkjunnar til fleiri
■Ranna en nokkur líkindi eru til, að hefðu heyrt hann að öðrum kosti. Hef-
lr og alla tíð verið ágæt samvinna með því að kirkjunni, og verður von-
andi ævinlega.
Prestsvígsla fór fram í Dómkirkjunni í Reykjavík 8. janúar. Vígði
hiskup Tómas Guðmundsson guðfræðing, er skipaður hefir verið prestur í
Ratreksfjarðarprestakalli í Barðastrandarprófastsdæmi, að lokinni kosningu
safnaðanna.
Reykjavíkurbær hefir nú sett eftirlitsmann meS kristindómskennslu í
skólum sínum, Þórð Kristjánsson kennara við Langholtsskólann. Hefir Þórð-
Ur undanfarin ár kennt þar kristinfræði einvörðungu og getið sér hinn bezta
°rðstír. Hann er áhugamaður hinn mesti og hefir kvnnt sér áður fyrir-
komulag kristindómskennslu á Norðurlöndum. — Þórður hefir þetta starf
Slt;t upp úr áramótum, og má mikils og góðs af því vænta.