Kirkjuritið - 01.08.1960, Side 4

Kirkjuritið - 01.08.1960, Side 4
Erfðcrskrá Dibeliusar biskups. í Kirkjuritinu 1954, bls. 202—216, er ágæt grein eftir dr. Magnús Jónsson prófessor um Otto Dibelius, biskup í Berlin, forseta Evangelisku kirkjunnar í Þýzkalandi. Er hann með fyllsta rétti nefndur „höfuðkempa" hennar. Nú er Dibelius biskup áttræður orðinn og lætur af stjórn þýzku kirkjunnar. Hefur hann því ritað erfðaskrá sína, er hann nefnir svo. Fer hún hér á eftir í lauslegri þýðingu: Ég hef lifað fyrir kirkju mína. Ég trú því og játa það, að þessi sýnilega kirkja, sem ég er skírður til og prestsvígður, sé heilaga, almenna kristilega kirkjan, sem Guð hefur viljað, að ég skyldi lifa og starfa í og játa trú mína. Kærleiki minn til þessarar kirkju skal verða mér samferða, þegar ég stíg yfir 1 eilífðina. Ég þekki vel kirkju mína, ríkulegar gjafir hennar, sem ég hef einnig fengið hlutdeild i, og fátækt hennar, sem oft hefur bak- að mér kvöl. Ég er þó sannfærður um það, að Jesús hefur ekki útskúfað þessari kirkju sinni. Það er trú mín, að hann hafi út- valið hana til þess að bera fram skýran vitnisburð um náð hans og sannleika einmitt þar sem andstæðurnar eru mestar milli tveggja gjörólíkra lífsskoðana. Þannig hefur hann falið þýzku kirkjunni hið æðsta hlutverk, og hann bregzt henni ekki, er hún leitast við að framkvæma það. Ég bið þá, sem verða eftirmenn mínir, að muna þetta hlut- verk og reyna aldrei að verða neitt annað en kirkja hans, sem var krossfestur vor vegna og reis aftur upp frá dauðum. Ver verðum að halda fast við Barmen-boðskapinn, sem vér sam- þykktum allir fagnandi 1934: „Jesús Kristur, eins og Heilög ritning lýsir honum, er Guðs orðið eina, sem vér skulum hlusta á og treysta í lífi og dauða og jafnan hlýða. Þetta — og ekkert annað — er markmið kirkjunnar.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.