Kirkjuritið - 01.08.1960, Blaðsíða 46
380
KIRKJURITIl)
í vísindum og heimspeki er raunverulega úr sögunni. Menn
eins og Niels Bohr, Albert Einstein og Werner Heisenberg eru
gild vitni þess. Þá skýrir höfundurinn það mjög vel frá viðmið-
unar (relativitets) kenningunni, að allt verður raunar að rekj-
ast til rótar og skiljast ofan frá, eins og líka er kjarni opin-
berunarinnar. Þannig eru kraftaverkin, eins og trúin segir, ekki
„brot“ á náttúrulögmálunum, heldur óvenjuleg samstilling og
beiting þeirra af völdum æðri máttar. Eins og tíminn er úr
sögunni, ef náð er vissum hraða, breytist skynjun vor og skiln-
ingur á æðra stigi við nýjar aðstæður, og sú þekking fullnast,
sem nú er í molum. Forsmekkur þessa fæst á vissum upphafn-
ingsstundum. í einu orði sagt er sú staðhæfing höfundar, að
vísindum og trú komi saman um, að hinn sýnilegi heimur er
ekki alger né alsjálfstæður. Hann vísar út fyrir sig — bendir
til sköpunarmáttar — til Guðs. Og gerir hann þess góða grein.
Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis. — Afmœlisrit.
Útgefandi: Prestafélag Hólastiftis. Akureyri 1959.
Þetta myndarlega rit er samnefnt riti, sem Friðbjörn Steins-
son gaf út fyrir fyrstu stjórn prestafélags Hólastiftis, réttum
60 árum áður eða á fyrsta starfsári þess. En það er elzta presta-
félagið í landinu, þótt starfsemi þess hafi ekki verið samfelld-
Hefur hinn nýi vígslubiskup Norðlendinga, séra Sigurður Stef-
ánsson, haft mestan veg og vanda af útgáfunni, sem er öllum
hlutaðeigendum til mikils sóma. Af efni ritsins skal fyrst nefnt
ágætt útvarpserindi séra Helga sáluga Konráðssonar: Presta-
félag Hólastiftis 60 ára. Er þar rakin sagan eftir því sem heim-
ildir leyfðu, og fylgja myndir stofnendanna. Ákall nefnist ljóð
og lag, hvort tveggja eftir séra Friðrik A. Friðriksson, prófast
á Húsavík, samið í tilefni af 50 ára vígsluafmæli Húsavíkur-
kirkju. Kröfur nútímans til prestanna, efnismikið erindi eftir
séra Kristján Búason. Ég er í skuld, ræða herra Sigut'
bjarnar Einarssonar, er hann vígði séra Sigurð Stefánsson til
vígslubiskups. Afmæliskveðja frá Ásmundi biskupi Guðmunds-
syni. Hvar var Jón Arason fæddur?, grein eftir séra Benjamm
Kristjánsson. Minning sr. Friðriks J. Rafnars vígslubiskups eft*
ir séra Sigurð Stefánsson og séra Pétur Sigurgeirsson. Minn-
ingarræða séra Lárusar á Miklabæ um séra Helga Konráðsson-
Og ýmislegt fleira bæði í bundnu máli og óbundnu.