Kirkjuritið - 01.08.1960, Blaðsíða 45
Bœkur.
Sigurbjörn Einarsson: Ljós yfir land. Hirðisbréf til presta
°g safnaða á íslandi. — Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar.
Reykjavík 1960.
Þetta er veigamikið rit, 200 blaðsíður, fallega útgefið í smekk-
legu bandi. Óvenju umfangsmikið og efnisríkt hirðisbréf, sem
að sjálfsögðu á erindi til allra landsmanna og verður vonandi
lesið af öllum þorra þeirra, enda ritsnilld biskupsins þjóðkunn.
Meginkaflarnir eru 10 og hafa þessar yfirskriftir: Immanúel
— Kirkjan — Heilög ritning — Boðun orðsins — Um stefnu-
ftiun í kirkjunni — Fögnum fyrir Drottni — Hið unga ísland
Riki og kirkja — Prestur og söfnuður — Lokaorð.
Þótt ekki séu raktar hér undirfyrirsagnir, er af þessu Ijóst,
a<5 hér er ekki aðeins gripið á stórmálum, heldur fjöldamörgu,
Sem nú er efst á baugi bæði í trúmálum og þjóðmálunum. Segir
höfundur víða til vegar, fræðir og áminnir með þeirri hugsjón,
að ljós Krists logi sem skærast í kirkju hans hérlendis og um
heim allan. Þess er þeim mun meiri þörf sem þjóðlífið allt er
í örlagaríkari deiglu en nokkru sinni áður. Og kirkjan sjálf
a ýmsan hátt á vegamótum.
Kr. Krarup: Guds virkelighed i lyset af den nye fysik. —
Livsanskuelsesspörgsmálet tilrettelagt for intellektuelt intres-
Serede. — Apologetica-Holbæk 1960.
Þetta trúvarnarrit er óvenju ljóst og læsilegt. Markmið höf-
Ur>darins er að leitast við að færa sönnur á, að hin nýjasta
heimsmynd vísindanna er svo f jarri því að ganga í berhögg við
kjsrna trúarbragðanna, þ. e. tilveru Guðs, að hún öllu heldur
íacrir sönnur á hana. Meginröksemdafærsla höf. er vafalaust
rett, þótt eflaust verði deilt um það eftir sem áður, hvaða full-
Súdar ályktanir verði af henni dregnar. Mér varð enn ljósara
eu áður af lestri bókarinnar, hvað hin hreina.efnishyggja bæði