Kirkjuritið - 01.08.1960, Side 14
PÍStlCQ.
Vaxandi vandamál.
Samkvæmt opinberum skýrslum eru nú talsvert meira en
helmingi fleiri afbrotamenn í fangelsum og á betrunarhælum í
Bretlandi heldur en var fyrir síðustu styrjöld. Líku máli gegnir
í fjöldamörgum öðrum löndum. Og það allra ískyggilegasta er,
að hlutfallstala unglinga í þessum hópi er miklu hærri en áður
og fer sívaxandi. Drykkjuskapur, lauslæti, skemmdarfýsn,
þjófnaður og fleiri lestir virðast víða hafa hertekið ótrúlega
margt æskufólk. Bein spillingaralda af því tagi fer yfir löndin
og rís æ hærra. Fá vandamál eru nú oftar rædd, en örugg lækn-
isráð ófundin, eða að minnsta kosti hefur enn ekki tekizt að
láta þau koma að því haldi, sem þyrfti að vera.
Innanríkisráðherra Breta, R. A. Butler, hefur nýlega ritað
grein um þessi mál í C.E.N. Hann byrjar mál sitt með því að
vitna í þau ummæli Bacons, að „velgengnin leiði bezt lestina i
ljós, en erfiðleikarnir dyggðina". Hafi þetta sannazt á stríðs-
og eftirstríðsárunum. Óneitanlegt sé, að afbrotin fari hraðvax-
andi á síðustu árum, þótt menntun, þægindi og almenn vel-
megun hafi aldrei verið meiri en nú. Þetta sé þeim mun um-
hugsunarverðara og vandasamara, sem þær aðstæður, sem fyrr
voru taldar höfuðstíur glæpa og lasta, hafi mjög breytzt til hins
betra. Fátæktin að miklu leyti úr sögunni og þrældómurim1’
en á hinu leytinu margföld fræðsla um, hversu tómstundunum
verði bezt varið. Sjálfur kveðst ráðherrann ekki treysta sér til
að rekja málið til rótar, en ræðir í meginefni greinarinnar um-
bætur á refsilöggjöfinni og réttarfarinu, sem ýmist hefur ver-
ið komið á eða eru á prjónunum þar í landi. Hann víkur og
því, að tilgangur refsilaganna sé að styðja og vernda siðgæðiS'
vitund þjóðarinnar almennt og miða einnig að því að leiða af-
brotamennina úr villu síns vegar og gera þá að nýtum þjóð'