Kirkjuritið - 01.08.1960, Síða 35

Kirkjuritið - 01.08.1960, Síða 35
KIRKJURITIÐ 369 skipið. Einnig greiddu bændur fiskitolla, fjórðung vættar þeir, Sem þingfararkaupi áttu að svara, en þeir, er minna fé áttu, fiskfjórðung. Þá telst einnig í Auðunarmáldaga kirkjunni til eignar 10 kýr, °g hljóta þær þá að hafa verið leigðar flestar, nema heytollar hafi verið fram yfir lambseldin, en þá hafa álögur á hina fáu sóknarbændur hlotið að hafa verið orðnar nokkuð þungar. Sennilegra þykir mér þó, að kýrnar hafi verið leigðar með hjá- ieigum frá prestssetrinu, sem taldar voru fjórar eða fimm á hð Árna Magnússonar, en þó líklega ekki allar fornar. Þar er nefnt Skógargerði, byggt í úthögum suður af staðnum, Naust, byggt við lendingu, Þorvaldsstaðir, sem nefndir eru kirkjueign snemma á öldum, Vilpa og Péturssel, sem byggt var á selstæði staðarins við Botnsvatn. Sjálfsagt hefur þó ekki byggð haldizt a þessum kotum nema öðru hverju vegna þess, hve lítið land lá til þeirra og afkomumöguleikar voru því litlir. Kirkjunni er þannig lýst, að hún hefur verið torfkirkja, tjöld- U('1 öll innan, sæmilega búin að messuklæðum og bókum, og ei'u þar með taldar átta bækur fram yfir venjulegar messu- bækur, sem sennilega hafa verið einhverjar heilagra manna sógur. Bendir það til, að prestar þeir, sem hér hafa setið, hafi ekki verið iðjulausir með pennann. Enn fremur eru kirkjunni taldar þessar eignir: Þrjár klukk- Ur og f jórir krossar smelltir, ein messingarstika og tvær járn- stikur, tvær mundlaugar og kirkjusár, messuklæðakista og skrin, sennilega undir helga dóma, Maríulíkneski og Magnúsar- kkneski sæmilegt. Yfir öðru þessu líkneski, og þá sennilega yfir Magnúsi, verndardýrlingi kirkjunnar, var veigaður (þ. e. Vlrofinn) dúkur. tecum. Enn er getið um pax-blað með kirkjugripum, en um notkun þess er þetta að segja. Sú var venja í kaþólskum messum, þegar búið var að brjóta brauðið og hafa yfir Agnus dei, að þá gaf prestur pax sem kallað var, en það fór þannig fram, að prestur og djákni kysst- Ust fyrir altarinu og sögðu: Pax tecum: Friður sé með þér. ^íðar kyssti messudjákn subdjákn, ef hann var viðstaddur, og Pannig hver annan eftir mannvirðingum. Skyldi síðan „hver 24

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.