Kirkjuritið - 01.08.1960, Side 48

Kirkjuritið - 01.08.1960, Side 48
382 KIRKJURITIÐ vel öldum saman, hafa nú verið vakin upp að nýju, t. d. Holti, Hreimur, Auðólfur, Eir, Yrsa o. s. frv. Til eru og ný nöfn, sem virðast fara vel, svo sem Hlíð. Aðalefni bókarinnar er skrá yfir íslenzk nöfn, forn og ný, og skýringar þeirra. Þótt hún sé alls ekki tæmandi, eins og höf. játar, er að henni hinn mesti fengur, sem og skýringum nafnanna, og hefur hún þær m. a. fram yfir mannanafnaskrána frá 1910. Sjálfsagt taka prestar bók þessari fegins hendi og fjölmörg- um mun hún verða bæði til gagns og gamans. Árbok for den norske kirke 1960 redigeret af sokneprest Bjarne O. Weider, er nýkomin. Fjölbreytt og skemmtileg að vanda. Hefst á grein, sem nefnist: Prestedömme—presteembete eftir H. K. Martinussen biskup í Stafangri. Næst er vita H. E. Wis- löfs, hins nýja biskups í Suður-Hálogalandi. Þá Ett ár av kir- kens liv, gagnmerk ritgerð eftir ritstjórann. Ágæt er minning- argrein Bjarne Skards biskups um hinn mikla kirkjuhöfðingja Eivind Berggrav. Enn vil ég sérstaklega nefna greinarnar: Folkeflyttingen og Guds rike og Mannen i menigheten. Þær fjalla um brennandi dagskrármál, þar sem hér. — Þetta er bók, sem borgar sig að kaupa og lesa. Fjalliö heilaga. Svo nefnist tímarit, sem séra Halldór Kol- beins í Vestmannaeyjum gefur út. Birtir það fyrst og fremst ræður eftir hina og þessa presta auk útgefanda. Einnig sálma og ávörp. Hvert hefti er ein örk. Kirkjuritinu hefur aðeins bor- izt eitt eintak — 6. blað —, jólahefti síðasta árs. I því er jóla- ræða eftir Ásmund biskup Guðmundsson. Tveir sálmar o£ fleira eftir séra Halldór. Þessi útgáfustarfsemi lýsir miklum áhuga og atorku, og ber vissulega að fagna henni og meta hana að verðleikum. Æskulýösblaöiö, nýtt hefti'/ ar fallegt og fjölbreytt að vanda og nær vonandi síaukinni útbreiðslu. G.Á.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.