Kirkjuritið - 01.10.1966, Side 10
Séra Sigurður Pálsson, vígslubiskup
BISKUPSVÍGSLA í SKÁLHOLTI
Sunnudaginn 4. september síðastliðinn, vigði biskupinn yfir íslandi hinn
nýkjörna vigslubiskup í Skálholtsbiskupsdæmi, séra Sigurð Pálsson,
prófast á Selfossi. Fór vígslan fram í Skálholtskirkju og hófst kl. 3 e.h.
Veður var gott og fjölmenni mikið. Gengu biskupar og prestar í skrúð-
göngu til kirkjunnar.
Kirkjukór Skálholtskirkju annaðist söng, en organleikari var Guðjón
Guðjónsson, stud. theol. Séra Þorsteinn L. Jónsson í Vestmannaeyjuni
lýsti vigslu og las VITA vígslubiskups, sem birt er hér á eftir.
Biskup íslands, Sigurbjörn Einarsson, flutti vígsluræðu.
Vígsluvottar voru: Séra Sigmar Torfason, prófastur, séra Sveinbjörn
Sveinbjörnsson, séra Jón Þorvarðarson og séra Hannes Guðmundsson.
Hinn nýi vígslubiskup prédikaði en altarisþjónustu önnuðust, séra
Guðmundur Óli Ólafsson í Skálholti og séra Hjalti Guðmundsson í Stykk-
ishólmi. Famuli (biskupsþjónar) voru þeir séra Sigurður K. G. Sigurðs-
son og séra Hreinn Hjartarson.
Klukkan sex um kvöldið bauð kirkjumálaráðherra, Jóhann Hafstein,
til veglegrar veizlu á Selfossi.
Æviágrip
Þegar mér er gert að skyltlu a?! minnast æviferils niíns, við þetta
tækifæri, koma mér í Img orð Davíft’s konungs er liann segir
Hvaft er maSurinn þess, aft
þii minnist lians
og mannsins barn aft þú
vitjir þess.
Augljóst er að ekki er það fyrir afrek eða verðleika nokkurs
mans að Guð minnist hans og vitjar hans, lieldur er það vegná
þess að liann hefur fyrir grundvöllun heimsins útvalið oss J
Kristi. (Ef. 1,3)
Saga sú, sem liér verður rakin er því sagan um það livernig
Guð hefir lagt sitt net mér til h'fs.
Ég er fæddur að Haukatungu í Kolheinsstaðahreppi hinn
8. júlí 1901. Foreldrar mínir voru Páll bóndi Sigurðsson og