Kirkjuritið - 01.10.1966, Page 26
360
KIRKJURITIÐ
Með komu þessara ungu prestshjóna að Torfastöðum var
eigi t jaldað til einnar nætur. Þar dvöldust þau samfleytt nær
finun tugi ára sóknarbörnunum til gæfu og sjálfum sér til mik-
illar sæmdar. — Slíkar voru vinsældir séra Eiríks, að sóknar-
börn lians öll skoruðu á hann að gegna áfram prestsþjónustu,
eftir að hann hafði fvllt embættisaldur. — Þetta var dómur
þeirra, sem hezt þekktu mannkosti séra Eiríks, skyldurækni
hans við embættistörf og áliuga hans fvrir velferðarmáluni
sveitarinnar.
1 embættistíð sinni mun séra Eiríkur liafa fvlgt þeirri fornu
venju sóknarpresta að fara hæ frá bæ um allt prestakallið einu
sinni á ári. Húsvitja eins og það var nefnt. Þetta jók mjög
persónuleg kvnni milli prests og safnaðar háðum aðilum til
lieilla. Þarna var sannur vinur á ferð. Fór eigi með neinum
asa, en gaf sér góðan tíma til að ræða við fólkið á bæjunum og
hafði á takteinum gnægð umræðuefna við liæfi hvers og eins.
En prestslijónin á Torfastöðum kunnu einnig að taka á móti
gestum. Þar ríkti sú einlægni, sá höfðingsbragur og risna, að
slíkt lilýtur öllum að verða minnilegt, sem að garði þeirra har.
Prestsselur í jiessum stíl var með sólskin innan veggja, þótt
kalt blési ytra. — Og margir munu hafa þekkt veginn til Torfa-
staða, þegar þungt var fyrir fótinn, eitt og annað mótdrægt
hjátaði á. — Það er hollt að geta lialdið heim léttari í spori
af slíkum fundum, vonbetri en fyrr eftir að vandamál höfðu
verið rædd og leyst til farsældar.
En salakynnin að Torfastöðum stóðu opin langtum fleirum en
sveitungum prestshjónanna. — Bæði innlendir og erlendir áttu
Jiar vísan griðastað, eigi einungis stund og stund eða nótt og
nótt. Þar var oftlega dvalizt dögum saman í sæluni fagnaði,
við vermandi viðmót og örlæti prestshjónanna. Þaðan foru
því gestir endurnærðir og blessuðu þann stað, sem liafði veitt
þeim ógleymanlegar minningar í veganesti.
Eins og kumiugt er, var alþýðufræðsla mjög í niolum á þvl
tímahili, er séra Eiríkur lióf embættisferil sinn. Hann gerðist
því skjótt eindreginn hvatamaður þeirrar hugmyndar að koma
á fót heimavistarbarnaskóla fyrir sveitina. — Þessi hugsjon
varð að veruleika tveim áratugum eftir komu lians að Torfa-