Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.10.1966, Page 46

Kirkjuritið - 01.10.1966, Page 46
Bækur DALAMENN. Æviskrár 1703—1961 III. TekiS hefur saman Jón GuSnason. Gefið út á kostnuiV liöfundar. Reykjavík 1966. Því veriVur ekki neitaiV aiV scra Jón GuiVnason er nieiVal mestu afreks- manna íslenzkra sakir afkasta sinna á sviðum þjóðfræðinnar. Eins og kunmigt er gaf liann fyrir fám árum út æviskrá Stranrlamanna, sein náðu yfir hálfa þriðju öltl. Síðan komu tvö bindi af æviskrám Dalamanna á sama tíma og þó öllu lengri. Og nú bætist við þriðja bindið með æviskrám þeirra Dalamanna, sem flutzt liafa tír héraðimi og tekið sér bólfestu annars staðar á þessu tíma- bili. Eru þar fyrst æviskrár nær því 1100 manna, sem alið liafa aldur sinn liérlendis, og síðan um 720 æviskrár Dalamanna í Vesturbeimi. Emi em tveir viðaukar í ritinu. Myndirnar, sent prýða það eru um 400. Ekki þarf að fjölyrða um bví- líkt eljuverk liér um er að ræða, eða þá geysilegu fyrirböfn og ná- kvæmni, sem það liefur kostað. Og ekki sízt vitnar það um stórhug og ábuga höfundar að hann skuli gefa safnið út á sinn kostnað. Því gróða- fyrirtæki getur það ekki verið. Hon- um er mest í mun að geta með þessu móti lagt fram sem stærstan skerf öldum og óbornum til fróðleiks og gagnsemdar, Bækur þessar allar eru mikil náma mannfræðinnar, sem grafið verður lengi í. Verk, sem eykst en ekki rýrnar í gildi þeim mun lengur sein líður. Væri séra Jón vel að því kominn að verða heiðursdoktor fyrir þessi fræði sín. Kirkjunni er það sæmdarauki að hafa átt hann í tölu starfsmanna sinna. Hann er í fremstu röð fróð- ustu manna hennar fyrr og síðar. En mörgum þeirra á íslenzk sagnaritun og ættfræði mest upp að unna. Þótt séra Jón Guðnason sé nú kominn allhátt á áttræðisaldur er hann enn hamhleypa til starfa og þaulsætinn og á vonandi enn eftir að hleypa mörgu af stokkunum. G. Á. Jón Kr. fsfeld: SONUR VITAVARÐARINS Rókaútgáfa ÆSII Rókaútgáfa Æskulýðssainbands Ilólastiptis liefur hleypt útgáfustarf- semi sinni farsællega af stokkuniim með þessari unglingahók. Séra Jon Kr. ísfeld hefur áður getið sér gott orð fyrir unglingasögur, sem birzt liafa á prenti og eina las liann i Útvarpið, sem aflaði honum auk- inna vinsælda. Sonur vitavarðarins mun verða liroskuðuin börnnm og skilgóðum unglingum kærkominn. Bókin er lipurlega skrifuð með fjör- legri atburðará8. Andinn að baki frfl' sögninni blýr og mannbætandi. Er bér ólíkt liollara skemmtiefni en margar æsimyndirnar, sem liörnin eru livað mest ginnt til að horfa « síðustu áratugina. Sízt vanþörf á að leiða htigi þeirra að hærri hugsjon- um og hrýna þau til betri dáða. Bæði liöfundur og útgefandi eiga þakkir skildar fyrir þá viðleitm, sem hér er sýnd í þá áttina.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.