Kirkjuritið - 01.10.1968, Page 48
414
KIRKJlJRlTlt)
INNLENDAR FRÉTTI R
Aldarajmœlis SignriVar prófessors Sívertsens er var 2. október sl. verður
ininnst í næsta befti.
AttrœiHsafmœlis Ásmundar bisknps GuiVmundssonar veriVur líka minnst I11"1,
Biskii/) íslands vísiteraíVi Suð'ur- og Norður-Múlaprófastsdæmi í sumar.
Var fjiilsótt við messur hans. í samhandi við vísitasíuna var minnst aldar-
afmælis Stafafellskirkju í Lóni með mikilli viðböfn 25. ágúst.
Séra Ingólfur I'orvaldsson fyrrv. sóknarprestur í Ölafsfirði lézt 15. sept-
sl. Verður bans minnst í næsta hefti.
Hólmavíkurkirkja var vígð á uppstigningardag 23. maí af biskupi Islands.
Prófasturinn sera Andrés Ólafsson prédikaði. Fjölmenni var við atböfnina,
og margar gjafir gefnar kirkjunni. Mynd hennar er framan á ritinu.
ASalfundur Prestafélags VestfjarSa var baldinn á Bíldudal dagana 24.—25.
ágúst sl. á heimili sóknarprestsins. Mættir voru 6 prestar af félagssvæðin11
eða % félagsmanna.
Fonnaður félagsins, sr. Sigurður Kristjánsson, selti fundinn og bauð
fundarmenn velkomna á fundinn, og sérstaklega bauð hann velkominn ■'
félagssvæðið hinn nýkjörna prest á Bíldudal, sr. Óskar Finnbogason. Hann
gat þess að einmitt nú á þessu sumri væri Prestafélag Vestfjarða 40 ára
gamalt, en það var stofnað binn 1. september 1928. Þá gat og formaður
kirkjulegra tíðinda á félagssvæðinu.
Aðalumræðuefni fundarins voru þessi mál:
1. Frumvarp um prestakallaskipun og kristnisjóð.
2. Frumvarp um veitingu prestsembætta.
Sr. Sigurður Kristjánsson flutti málin inn á fundinn og urðu umræður
um þau miklar.
Eftirfarandi tillögur voru samþykktar:
1. Aðalfundur Prestafélags Vestfjarða, lialdinn á Bíldudal dagaiia 24.-25.
ágúst 1968, skorar á Alþingi að taka til meðferðar og afgreiðslu á koni-
andi vetri þau kirkjulegu frumvörp, sem lögð bafa verið fyrir þingið op
legið þar óafgreidd og lítt eða ekki um þau fjallað, svo sem frumvarpið
um prestakallaskipun og kristnisjóð og frumvarpið um veitingu prests-
embætta. Telur fundurinn óviðunandi Jiað vanmat, sem kirkjunni er sýnt
með þessu og væntir í því efni skjótra úrbóta.
2. Aðalfundur Prestafélags Vestfjarða 1968 álítur að núverandi aðferð við
veitingu prestakalla sé með öllu óhæf fyrir margra hluta sakir. Telur fund-
urinn rétt að reyna þá leið í þessu efni, sem á er bent í þegar framkoninu
frumvarpi til laga um veitingu prestakalla, og nú liggur óafgreitt í fórum
Alþingis.
A