Kirkjuritið - 01.04.1975, Page 44

Kirkjuritið - 01.04.1975, Page 44
Nú er hún a. m. k. komin nokkuð á sjöunda tug ára, og verður þessi nafn- gift þvi enn vafasamari en hin fyrri. Einnig heíur flogið fyrir orðið „alda- mótaguðfræði", og það tel ég henta bezt. Leyfi ég mér að gera það að til- lögu minni, að svo verði stefna þessi nefnd framvegis, en þeir, sem hana aðhyllast ,,aldamótaguðfræðingar“. Flestir fylgismenn stefnunnar munu geta staðið undir því nafni fyrir aldurs sakir, eri hinir fáu, sem yngri eru, fyrir sakir hugarfars. Undanfarna aaga hafa tveir alda- mótaguðfræðingar látið Ijós sín skína í Morgunblaðinu vegna þessa máls. Af meðræddri blygðunarsemi hleyp ég yfir nöfn þeirra. Hjá hinum fyrri skein Ijósið með ámóta daufum bjarma og ævinlega. Hjá hinum síðari var það slokknað að íullu og mjög að vonum. Ekki skal ég gera storm að svo kuln- uðum glæðum. Ég gæti allt eins farið suður í lönd að leita uppi Göngu-Hrólf til að berja á honum eins og að taka til við að gagnrýna aldamótaguðfræðina á því Herrans ári 1975. Hins vegar leyfi ég mér að koma með tillögu: Væri það ekki snjallræði að leggja til hliðar orð eins og ,,frjálslyndi“ og ,,þröngsýni“ í guðfræðilegum deilum. Mér koma þessi orð þannig fyrir sjón- ir, að þau séu ámóta úrelt og merk- ingarlaus nú og ,,hægri“ og ,,vinstri“ í stjórnmálum. Ef „frjálslyndi' á að merkja víðsýni, umburðarlyndi o. þ. h., get ég þess til, að fullt eins margir eigi þá einkunn utan raða aldamóta- guðfræðinga sem innan. Ef „þröng- sýni“ á að merkja það gagnstæða, má og vera, að aldamótaguðfræðingar séu ekki síður vígfærir á þeim vettvangi en aðrir. Eftir því sem ég bezt fæ séð, snýst ágreiningur meðal íslenzkra guðfræð- inga nú á dögum um margt annað fremur en aldamótaguðíræði og guð- fræði síðari áratuga. Ég hygg hann snúist að verulegu leyti um tvö klass- isk evangelisk-lúthersk hugtök, sola Scriptura og sola fide. Hið íyrra nefnda bendir kristnum manni innan okkar kirkju á það, hvar opinberun þá er að finna, sem okkur er fengin. Mönnum er ráðlagt að „gefa sig ekki við ævin- týrum“ (1. Tím. 1:4). Kristur er opin- beraður okkur í Heilagri Ritningu. Hann nægir okkur, bæði þessa heims og annars. Við þurfum ekki að eyða tímanum í að liggja yfir írnynduðum „opinberunum", getum t. d. látið kyrr liggja öll þau kynstur af „dulrænum frásögnum", sem prentuð eru hér á landi. í sjálfu sér er allt í lagi með aJ lesa slíkt, — ef menn hafa gaman av vel skrifuðum þjóðsögum. En þess háttar bækur færa okkur ekkert, e( verða megi til hjálpræðis. Þar hefur Biblían ein fyrsta og síðasta orðið. Síðara hugtakið, sola fide, „íyrir trúna eina“, er grundvallaratriði ev- angeliskrar kristni. Kristur einn er frelsari okkar. Við þörfnumst einskis nema trúarinnar á hann. En við þörín- umst þess að komast fljótt og vcl hans fund, — krókalaust. Allt það, sem stendur á milli ein- staklingsins og Krists, brýtur í bága við grundvallaratriðið „sola fide-“ Margt mætti nefna. En mér er enn eíst í huga það efni, sem ég vakti máls á 42

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.