Handbók fyrir hvern mann - 01.01.1915, Blaðsíða 55
55
þoli þeirra, með vanhirðu eða á annan hátt, slcal
sæta sektum frá 10—1000 krónum, eða einföldu
fangelsi, ef miklar sakir eru.
2. gr. Frá 1. október 1917 skulu allir þeir, sem
skepnur eiga, lial'a næg hús fyrir þær allar. Brot
gegn þessu álcvæði varða sömu viðurlögum, sem
brot gegn 1. gr.
3. gr. Stjórnarráð Islands setur reglur um slátr-
un búpenings á almennum slátrunarstöðum, um
rekstur og annan Ilutning innanlands á fje til slátr-
unar, á fje og hestum til útflutnings, svo og um
meðferð á hestum í brúkun. Skal það gert með
reglugjörð, sem jafnframt ákveður sektir fyrir brot
á slíkum reglum.
4. gr. Með brot gegn lögum þessum skal farið
sem opinber lögreglumál.
5. gr. Með lögum þessum er úr gildi numin 299.
gr. almennra hegningarlaga 25. júní 1869.
Lög um útflutning lirossa.
Hross má eigi flytja frá íslandi til útlanda á
tímabilinu frá 1. nóvember til 1. júní, og eigi á
þilfari á öðrum tíma árs, en frá miðjum júni til
ágústmánaðarloka.
Lög um viðauka við sveitarstjórnarlög.
1. gr. Kosningar til hreppsnefnda og sýslunefnda
skulu fara fram með leynilegri atkvæðagreiðslu,
-ef hreppsnefnd ákveður eða x/3 hluti kjósenda, sem
á kjörskrá standa, óska þess, og skal þá farið eftir
ákvæðum þessara laga, cn ella sem áður eftir nú-
gildandi lögum.
Ef lireppsnefnd ákveður leynilega kosning, skal
tiún auglýsa það 2 vikum fyrir kjörfund.
Sje óskin frá kjósendum, skal hún komin skrif-
ieg til oddvita kjörstjórnar áður en 3 vikur eru