Nýjar kvöldvökur - 01.05.1912, Blaðsíða 16

Nýjar kvöldvökur - 01.05.1912, Blaðsíða 16
112 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. krafti, og hughreystandi sálmalag með snildar- spili, hljómaði út yfir götuna og varð þess valdandi, að stöku maður, sem enn var á ferli og fram hjá gekk, dokaði við til að njóta þessa ágæta hljóðfærasláttar. Síðari hluta næsta dags sat Lynge í bezta skapi í herbergi sínu. Hann hafði fyrri hluta dagsins farið út í Birkilund til að skýra unn- ustu sinni frá því, að loks hefðu peningar og verðbréf föður síns fundizt. Aðra lét hann ekki vita um þetta og þau Busk og Didriksen þögðu eins og steinar. Hann kom heim í bezta skapi og beið nú eftir Jockumsen, sem hann hafði beðið að tala við sig uin skuldaskiftin. Hann þurfti ekki að bíða lengi, því hann heyrði von bráðar að karlinn kom upp stigann. Regar hann kom inn var hann með miður góðmann- legan mikilmennskusvip. »Svo þér eruð komnir,« sagði Lynge. »Eins og þér sjáið, eg læt aldrei bíða eftir mér, þegar eg ætla að útkljá skuldaskifti.« »Og það er alvara yðar að ganga að mér með fjárnámið, af því að eg vil ekki borga?« »Auðvitað,« svaraði karlinn og hlammaði sér ofan í legubekkinn. »En þér vitið þó með vissu, að þér eigið ekkert hjá mér,« sagði Lynge með uppgerðar vandræðasvip, »og þér vitið eins vel og eg að faðir minn borgaði yður þetta lán skilvíslega.« »Sannanir, herra minn, fram með kvittunina,« greip karlinn fram í drembilega. • Kvittunin var ekki finnanleg, en eg hugs- aði að kunnugleiki yðar á öllum málavöxtum og skuldaskiftum ykkar föður míns væru yður nægar sannanir. Ætti eg að borga yður þessa upphæð, væri eg sama sem öreigi, því að pen- ingar þeir, sein eg átti von á að erfa eftir föð- nr minn, hafa glatast, eins og þér ef til vill hafið heyrt. Eg vil því enn einusinni skora á yður að láta kröfu yðar falla niður, sem þér vitið fyrir Guði og samvisku yðar að er ekki rétt. Gæti eg svo á einhvern hátt gert yður greiða, ann- an en þann, að borga yður rangar skuldir, mundi mér vera það ánægja.« Okrarinn stakk höndunum í buxnavasana, rétti frá sér fæturna, hallaði sér aftur á bak, horfði á húsráðanda me.ð illmannlegu glott og tók svo til máls: »Nú, á að taka það á þennan hátt, þegar í skömmina er komið. Nú er gott að biðjast griða, þótt áður hafi verið borizt mikið á og horft með fyrirlitningu niður ,til okrarans og blóðsugunnar. Rá var kveðið við annan tón. F*á átti eg og mínir líkar að vera bæjarskömm, sem enginn skyldi lyfta hatti fyrir, en nú er gorgeirinn loksins farinn að minka. Og svo er ætlast til að eg sýni mig sem göfugmenni, sem slaki til í öllum greinumi og gleymi allri þeirri auðmýkt, sem eg hefi orðið fyrir, vegna stærilætis yðar og föður yðar. Nei, þakka fyr- ir, Lynge litli, slíkur meinleysingur er eg ekki. Pér eruð nú komnir í þá sjálfheldu, sem ekki verður hlaupið úr. Fasteignin verður að fara og eitthvað af innbúinu, og þá fer nú að tálg- ast utan af metnaðinum og mikillætinu, og á eftir er svo hægt að halda sér við jörðina og hætta við að hafa annara eignir til að mikl- ast af.« Anægja sú, sem karlinn hafði af kröggum þeim, sem hann hélt að skuldunautur sinn væri í, hafði þau áhrif á Lynge, að hann fékk enn meiri fyrirlitning og viðbjóð á karlin- um, en hann hafði nokkru sinni áður haft. Hann hætti því við allt uppgerðar látæði, og spurði þurlega í ákveðnum róm: »Eru réttarþjónarnir á Ieiðínni?« »Nei, en þeir koma bráðum.* »Gott er það, því eg þarf líka að láta þá gera nokkuð fyrir mig.« »Rér líka?« spurði okrarinn háðslega. »Já, eg, góði maður,- sagði Lynge, um . leið og hann stóð upp og teigði úr sér frammi fyrir okraranum. »Það er gamall, falskur víxill, sem eg þarf að sýna þeim, og svo kvittunin góða, sem eg er nýbúinn að hafa uppá. Hún sýnir ljóslega að þér hafið fengið peninga þá, sem þér nú heimtið af mér. Pað er von að yður verði dálítið hverft við, að sjá nú í opn- ar fangelsisdyrnar í stað þess að taka á móti sex þúsund dölum. En nú hafa viðskifti okkar

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.