Nýjar kvöldvökur - 01.10.1913, Blaðsíða 3

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1913, Blaðsíða 3
JAKOB ÆRLEOUR. 219 »Kominn á skip, herra,« sagði stýrimaður og tók með lotningu til hattsins. »Þér hafið ver.ið lengur en þér máttuð,« svaraði varaforingi, »og. svo verð eg að gera út bát til þess að ná ferjunni fyrir slóðarskap yðar.« »Með leyfi, lierra, þetta eru rösklegir pilt- ar,« svaraði stýrimaður, iRað yrðu ágætir liðs- menn. Rað er ekki ómaksins vert að fara að feyna að ná bátnum.« Þessi bending hans til þess að geðjast vara- foringja féll i góða jörð. »Hverjir eruð þið, drengir?« sagði vara- foringi við okkur. »Ferjumenn, herra.« »Ferjumenn? ja rétt. Og áttuð þið bátinn?« »Nei, herra,« svaraði eg, »maðurinn, sem eg læri hjá, átti hann.« »Nú, svo þið áttuð hann ekki. Eruð þér ferjunemandi?« »Já, herra, við erum báðir nemendur.« »Lofið mér að sjá námssamningana ykkar.« »Við höfum þá ekki í vösunum.« »Á hverju á eg þá að vita, að þið eruð nemendur?« »Við getum sannað það, herra, ef þér óskið þess.« *Já. eg óska þess — og eg veit að kap- teinninn óskar þess.« »Viljið þér láta sækja bátinn — hann er n®rri horfinn.« »Nei, drengir, til þess get eg ekki haft skip hans hátignar.« »Þá er bezt við förum sjálfir, Tumi,« sagði eg og við gengum fram til þess að kalla á ferjumann þann, er lá á árum sínum rétt við fregátuna. »Bíðum við, ekki liggur á; hvert ætlið þið, Piltar?« »Sækja bátinn okkar, herra.« »Án míns leyfis — ha?« »Við heyrum ekki fregátunni til, herra.« •Reyndar ekki enn — en mér finst mjög líklegt það verði innan skamms, að þið heyr- ið *len»i til, því -að -þið hafið engin vegabréf.* »Við getum sent eftir þeim og fengið þau snemma í fyrramálið.« »Velkomið, ef þið viljið; en þið getið ekk búizt við eg trúi öllu, sem mér er sagt; hvað áttu mikið eftir af þínum námstíma?« sagði hann við Tuma. »Minn tími er á enda á morgun, herra.« »Á morgun, segir þú? Ja, þá hef eg þig til morguns og pressa*) þig þá.« »Ef þér haldið mér eftir nú, svo pressið þér mig í dag, herra.* »Langt frá. Rér verður haldið eftir, þang- að til þú getur sannað, að þú sért ferjunemi.« »Ja, þá er eg líka pressaður á námstíma mínum.« »Síður en svo. Pú heyrir ekki skipinu til, fyr en þú ert settur á fæði í bókum þess. Eg læt ekki setja þig á fæði í dag, og þá ertu ekki pressaður.« »Að minsta kosti pressaður af sulti,« svar- aði Tumi; hann gat ekki látið vera að koma gamanyrðum að. »Eg skal senda þér nógan mat,« sagði varaforingi hlæjandi. »Pér lofið mér þó að minsta kosti að fara,» sagði eg, því að eg sá að ef við ættum að losast, var alt undir því komið að ná sem fyrst í Drúmmond og biðja hann hjálpar. »Hvaða vitleysa. Þið verðið að róa í bát saman eins og áður. Mér þykir undireins svo vænt um ykkur, strákar, að eg hef ekki skap í mér til þess að skilja ykkur að.« »Pað er hart að missa atvinnu sína á þenna hátt,« sagði eg. »Hér verður nóga atvinnu að fá og meira en það,« svaraði varaforingi hlæjandi. »Og svo eru það engin dauðans vandræði að þjóna kónginum tvö —þrjú ár og fylla vasana með hernámspeningum. Hvað finst ykkur um að ganga í herþjónustu með frjálsum vilja?« »Ætl’ við mættum fara stundarkorn í Iand til þess að hugsa uni það,« sagði eg. »Nei, eg er hræddar um að ráðningar- ') »Pressa« er það kallað, að taka menn nauð- uga og setja þá á herskipin. 28*

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.