Nýjar kvöldvökur - 01.10.1913, Blaðsíða 5

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1913, Blaðsíða 5
JAKOB ÆRLEGUR. 221 föt okkar beggja send. Tumi fékk bréf frá for- eldrum sínum, en ekki nenni eg að skýra frá efni þess. Rað var eins og vant er að vera, þegar svo stendur á. Svo komu föt okkar, og seinast kafteinninn. Margir voru þeir á skipinu, sem aldrei höfðu séð hann fyrri, og voru þeir allforvitnir að sjá hann og geta sér til þess ”af seglalagi hans» eða útliti, hvernig maður hann mundi vera. Við Tumi vorum á gægjum við skotvirkjahliðið, þegar bátur hans kom; en Þegar eg fór að athuga hann betur, sá eg laut- •nantinn, sem sat við hlið honum og þekti hann þegar. Það var Wilson, offiserinn, sem ætlaði að henda árina og braut bátinn, þegar eg bjargaði bókaranum og skrifaranum. Eg varð þessu feginn, því eg vonaði að hann t^hi málstað okkar. Bátsmaðurinn blístraði, kapteinninn kom upp uPPgönguna og allir tóku ofan, skotliðarnir heilsuðu með byssunum og lautinantinn, sem stýrði þeim, heilsaði með því að láta oddinn á sverði sínu síga niður á þiljur. Almáttugi mað- Urinn tók kveðjunni með því að tæpa þumal- fingri og vísifingri fremst á hornið á þrísperta hattinum og lyfta honum svo sem þumlung. hlann var hár maður og magur, beinamikill og svo herðabreiður, að auðséð var að hann var heljarmenni til burða; andlit hann var í fullu samræmi við vöxtinn, hann var harðlegur á yfirbragð, augun hvöss, nefið fallegt og rösk- mannlega lagað, munnurinn stór og ágætlega fentur. Alt andlitið bar meira vott um einbeitni en hörku. Þegar hann brosti, fór honum það Vei- Allar hreifingar hans og málrómur var fastlegt og þiljurnar bifuðust undan tröllaskref- um hans. Svo lét hann kalla alla menn upp; þeir . °mu, skipuðu sér saman og góndu á kaptein- lnn líkast eins og sauðahópur á grimman hund, en hann mælti svo til þeirra: ^Börn mín, úr því það er nú einusinni svo omið, að við erum hér allir innan sömu borða, er bezt við vitum strax, að hverju við göng- nm. Eg ós£a ag 0fffserai mínir staifi nákvæm- ega að herþjónustunni og hagi sér að öllu nákvæmlega sem heiðursmenn. Eg óska að sjá góðan aga meðal manna minna, og að þeir séu verkaliðugir og reglusamir. Og það sem eg óska, vil eg hafa—skiljið þið það? Hana nú,« sagði hann og hleypti brúnum, »horfið nú framati í mig og sjáið svo, hvort þið treyst- ið ykkur til að glettast við mig.» Fólkið gerði það og þóttist sjá það mundi vera ráðlegast að eiga ekki við það; það var auðséð á þeim. Og kapteinninn virtist ánægður með niðurstöðuna og lét þá fara. Regar þetta var búið, gekk eg til Wilsons Iautinans, sem stóð afturfrá, og sagði við hann: »Þér munið ef til vill ekki eftir mér, herra; en við hittumst einusinni að kvöldi til, og þá sökk með yður bátur — og þér spurðuð mig þá að nafni.« »Eg man það vel, vinur; þér heitið Ærleg- ur -- er ekki svo?« »Jú, herra.« Svo sagði eg honum nákvæmlega alla sögu okkar, og bað hann aðstoðar; en hann hristi höfuð'ð. »Kapteinninn okkar er undarlegur maður,« sagði hann. »Hann hefur hin frekustu völd, og enginn býður sér að þrjózkast við skipun- um sjóherstjórnarráðsins nándarnærri eins og hann. Ef það kæmi bein skipun frá sjóher- stjórnarráðinu um að sleppa ykkur, mundi hann gera það, en vanareglurnar lætur hann sér mjög svo sama um. Og svo förum við að stimdu liðinni. Samt skal eg tala við hann, en býst við að fá á hann fyrir, því að það er varafor- ingjans verk en ekki mitt.« »En, herra, ef þér bæðuð varaforingja að tala við hann?« »Hann mundi ekki gera það, þó eg bæði hann ; við höfurn altaf þörf á hásetum, og vara- foringi veit fullvel, að kapteinninn er ófús á að missa ykkur. Hann mun því ekkert segja fyr en það væri orðið ofseint, og taka svo á sig ábyrgðina af því að hafa gleymt því. Kaptéinn- inn hefur svo mikið að segja, að hann getur hvenær sem vill gefið manni meðmælingu til þess að fá skip til forráða —og maður verður

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.