Nýjar kvöldvökur - 01.10.1913, Blaðsíða 22

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1913, Blaðsíða 22
238 NYJAR KVLÖDV0KUR ritað er á íslenzka tungu. Pað er að vísu eigi svo mjög skapandi ímyndunarafl eða stórfeng- leg hugkvæmni, sem brýzt fram í skáldskap hans; og það eru engin stórmál mannlífsins, sem hann dregur til enda í sögum sínum. Rað eru engir forgangsmenn stórgerðra framkvæmda eða hugsjóna, sem hann málar; það er eins og hann ráði ekki við þá. En hann hefur ráð á stíl, fegri og viðfeldnari en nokkur annar, og þessari nákvæmni að smjúga inn í lundarfar og hugsunarlíf þeirra, s6m smáir eru og lítið ber á í mannlífinu, ekki sízt þeirra, sem eiga eitthvað bágt. Og svo annað: þó að stundum virðist svo, sem það lakara í mönnunum virð- ist verða ofan á í sögum hans, er þó eitt víst, að trúin á sigur hins góða hefur yfirhöndina. Og það er mikilsvert. Rað góða getur oft sigr- að, þó að það virðist verða í minni hluta að yfirvarpi eða í bráðina. Og sjaldan bregður hann fyrir sig neinu kaldranaspotti; kuldahlát- urinn að heimskunni og ilskunni kemur sjaldan upp. Hann er ekki bölsýnismaður. Frá ýmsum hliðum eru fimm smásögur, og könnumst við öll við þrjár af þeim, sem lesið höfum Skírni árin 1908 og 1909. Af þeim sögum virðast mér Vistaskifti vera einna veiga- mest, líklega af því að hún er auðskildust, enda þótt efni það, sem hún hefur tekið til meðferðar, skammarleg meðferð á umkomu- Iausum sveitardreng, muni tæpast eiga sér stað í þeirri mynd, sem það er fram sett, nú á dög- um. En ef svo væri, þá ætti alstaðar skömm- in að bytna á þeim níðingum, sem gera sig seka í því, eins tilfinnanlega eins og hún bytn- ar á Rorgerði í Skarði. Niðurstaðan á marjas er ágæt, og heimilisháttunum þar á bænum er mjög vel lýst. Á vegamótum verður líklega sumum nokkuð torskilið, en vel og glögg- lega er þar lýst eðlismun skapferlis og fram- komu karls og konu, þar sem Sveinn og Stein- unn eru, prestshjónin. Rað verður oft að berj- ast með lagi, þegar við valdið er að eiga, til þess að slá vopnin úr höndum þess, eða að minsta kosti gera höggin skaðminni en þeim er ætiað áð verða. Konan sér það ekkí, og verður því æst og áköf, þangað til maðurinn hennar ér búinn að sýna henni það með hægð og lagi, hvaða ráð hafi verið bezt — og einu úrræðin sem hann gat beitt, til þess að draga úr ranglæti kaupmannanna og sýslumannsins. Tvær síðustu sögurnar eru nýjar; Anderson og Oskin. Anderson er spretthörð saga af Vest- ur-fslendingi, sem kemur heim eftir 25 ára Vesturheimsvist til þess að hefna sín á frænda sínum, sem hefur beitt hann rangindum og svikum í bernsku. Aðalefnið ér það, að það er aldrei svo hægt að breiða yfir gamlar synd- ir, aldrei hægt að urða þær svo djúpt, að þær geti ekki komið upp úr kafinu. Þær eru eins og Faxahausinn í Örvar-Oddssögu—j>ær blása upp þegar menn eiga sízt von á. Annars er Anderson þessi ekki geðfeldur maður, hann lætur vaða með súðum, og þegar hann er að kvelja Porgrím á hinum gömlu syndum hans, og neyðir hann til þess að sleppa stelpunni, sem hafði stolið beltinu, og gefa henni það í tilbót, þá kann hann sér ekki hóf; hann ætlar með oflæti sínu að kúga Rorgrím til þess að eiga hana. En þá tekur Ingibjörg fram í og spyr, hvort hann ætli nú að gera níðingsverk; — ekki á Þorgrími, heldur á stelpunni. Þá átt- ar hann sig og sleppir því. Anderson er ósvik- inn Yanki, Vesturheimsmaður, ötull og fylginn sér og sést ekki fyrir, rífur allar stíflur og kann ekki að fara hægt. En glæsiménni er hann mitt í öllum rostanum og tekur »með trompi« alt sem hann ætlar sér, og Ingibjörgu líka og Grundina með —og hefur þó ekki kynst henni nema einu eða tvo klukkutíma. Það er ef til vill nokkuð fljótt að undið af Ingibjörgu að lofast honum þarna undireins—en hún um það. Það verður þó altaf álitlegra en halda áfram við Þorgrím, og það þó að hann væri bæði hreppstjóri og alþingismaður. Óskin er fallegt æfintýri, sem er leikið á milli himins og jarð- ar, og bendir á trú höfundarins á það góða og á það, að framtíðartakmark mannanna sé að komast upp — áfram — upp á við til æðri þroska, og það í gegnum áreynsluna — vinn- una. í henni, áreynslunni og vinnunni, er sú

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.