Nýjar kvöldvökur - 01.10.1913, Blaðsíða 6

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1913, Blaðsíða 6
222 NYJAR KVÖLDV0KUR. að sjá um sinn hag. En eg skal nú reyna það samt, en eg gef ykkur litla von.« Wilson gekk til kapteinsins, sem var þar að ganga um gólf með varaforingja, heilsaði og gat þess til að byrja með að hann þekti mig. »Nú, ef þér þekkið manninn, hr. Wilson, verður auðvitað að gera út um málið,« svaraði hann með uppgerðarkurteisi, * hvar er hann?« Við gengum fram, og eg sagði hvernig alt hefði atvikazt. Rá svaraði kapteinninn : »Eg óska altaf að alt sé skelt og felt. En þó eg hefði pressað einhvern af prinsunum og kóngurinn og drotningin bæðu mig á knjánum að sleppa honum, gerði eg það ekki nema sjóherstjórnar- ráðið skipaði mér það. Skiljið þið það?« Með það fórum við. Svona Ientum við þá í sjóhernum upp úr þurru. Skipinu var ætlað að vera á flökti milli Azoreyja og Madeiru um tvo mánuði til þess að handsama þar nokkra kapara, sem höfðu tekið þar enzk skip. Svo áttum við að hitta aðmírálinn í Halifax og taka þar við af fregátu, sem hafði legið þar um nokkur ár. Við vorum ekki lengi að læra að þola sjó- inn og lærðum fljótt að gera gagn, og það svo, að yfirmennirnir tóku eftir okkur. Einkum varð Tumi eftirlætisgoð þeirra allra, enda var hann síspilandi og gerði alla káta með sér. Einusinni datt sjóliði útbyrðis og barst aftur með skipinu. »Eg óska að bjarga honum þess- um, Jakob,« sagði Tumi og vatt sér útbyrðis. »Og eg óska að hjálpa þér,« sagði eg og steypti mér út á eftir honum. Við áttum alhægt með að halda manninum uppi þangað til bát- urinn kom og tók okkur alla upp. Regar við komum upp uppgönguna, stóð kapteinninn á miðþiljunum, reiddi kíkinn brosandi upp við okkur og sagði: »Eg heyrði til ykkar beggja, og eg gæti óskað að eiga marga jafnóskammfeilna stráka og þið eruð.« Við vorum svo þarna á flökti fram og aft ur á milli Kanaríeyjanna og Madeira, en sáum aldrei neinn kaparann; liðu svo sjö vikur full- ar, að ekkert var að sjá, og lofaði þá kap- teinninn fimm gíneu verðlaunum hverjum þeim er fyrstur sæi kapara. Voru nú allir á gægjum sem gátu og máttu, og við Tumi ekki hvað sízt. Héræfingar fóru fram daglega, og tóku menn að gerast vel liðfærir. A hverju kvöldi voru menn kallaðir upp til skemtunar, eða til að leika sér. Einn var sá leikur, sem var eft- lætisleikur skipstjóra. Hann var í því fólginn, að einti hásetanna gekk á undan og svo marg- ir á eftir sem vera vildi, en þeir urðu allir að gera það sama og sá sem á undan gekk, hvað sem það var, og fylgja honum, hvert sem hann fór. Leikurinn hét »fylgdu formanninum«, og studdi hann mikið að því að gera menn fima og liðmannlega. Tumi lét aldrei ganga eftir sér, ef eitthvað skringilegt var á seiði; hann varð foringi einn daginn. Hann hljóp fyrst upp reiðastigana, út á rárnar, klifraði inn á milli topptauganna, vo sig frá einu mastri til annars eftir stögunum, hleypti sér ofaneftir höfuðbendunum og sverti sig seinast í framan með sóti við reykháfinn. Reir voru einir þrjá- tíu á hælum honum og gerðu aliir hið sama; hlógu þeir dátt og lá vel á þeim, enn offíser- arnir dáðust að fimleika þeirra. Alt í einu datt Tuma ráð í hug; blæjalogn var og dauður sjór. Tumi fór eins og elding upp í reíðann og út á hnokkann á beitiásnum; eg var næst- ur honum og svo hinir á eftir. Óðara er hann var kominn út á ráarhnokkann, spratt hann upp, hélt í topptaugina, kallaði hátt upp »Fylgið foringjanum« og eindembdi sér af hnokkanum ofan í sjó, Eg var næstur, kallaði líka: »Fylgið foringjanuuu, og fór sömu leið — og svo gerðu allir hinir, hvort sem þeir voru syndir eða ekki, því að minkun þólti að hika við. í sömu svifunum kom kapteinninn upp tröppuna og þóttist sjá mann fara fyrir borð — en það var Tumi. En svo kom öll hala- fóran, þrjátíu talsins, tveir og þrír í einu, og má geta nærri, hvað hann hefur orðið hissa — hann hélt skipshöfnin hefði fengið æðiskast af illum öndum eins og svínin forðum í biflí-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.