Nýjar kvöldvökur - 01.10.1913, Blaðsíða 14

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1913, Blaðsíða 14
NYJAR KV0LDV0KUR 2 30 til um hnjáliðinn og vatn hlaupið milli liða, sem kallað er; þó varð Sigurður fljótt jafn- góður af því, en með hitt var hann lengur að ná sér. Skamt eitt var liðið frá því Sigurður fór að klæða sig, og en hafði hann ekkert handarvik mátt taka. Nú voru skipin að hætta veiðum hvert eftir annað, og vinnutíminn við síldina því á enda, nema í verksmiðjunni. Aldrei höfðu bágindin og hinar erfiðu kringumstæður þrengt svo að þeim Sigurði og Rórunni sem nú; aldrei til líka við það. Nú lá aðeins einn vegur fyrir þeim: það var að Iáta hreppinn taka við sér. Eins og þeim þótti það líka gott, eða hitt heldur, því altaf höfðu þau reynt í sinni búskapartíð að skirrast við því að þiggja af hrepp. Það var með naum- indum, að þau höfðu það sem þurfti til lífs- viðurværis um sumarið, sem nú var á enda; og það með því að Þórunn varð að leggja óvenjumikið á sigi Nú stóðu þau allslaus uppi undir veturinn. Jóhanna vann eins og víkingur þó farin væri að eldast; en hana munaði ekki heldur lítið um það, hve systir hennar hjálpaði upp á hana með matinn. Rórunn þurfti einlægt að vera heima, til að sjá um fæðið handa þeim og börnunum, og stunda veikan manninn. Hún eldaði þá líka matinn handa systur sinni, svo hún þyrfi sem minst að tefjast frá vinnunni. Þetta kom Jóhönnu mjög vel, og hún lét syst- ir sína njóta þess. — En þá kom annað til sögunnar, sem leiddi til hins versta. Öll þessi óhappa afdrif og bágindi lögðust mjög í geð- ið á Sigurði, og lá við hann yrði hálf sinnis- veikur útúr öllu saman. Regar geávonzkan hljóp í hann, bytnaði hún á konu hans, og bættist við aiinað ilt, sem hún hafði við að stríða. Þetta líkaði Jóhönnu stórilla, og var hún Sigurði mjög reið fyrir, að hann lét geð- vonzku sína bytna á konu sinni saklausri. Jóhanna kendi honum um ófarirnar, hann væri sú mesta mannleysa sem til væri og gæti víst hvergi lifað; systir sín væri illa farin að eiga hann fyrir mann og þar fram eftir göt- unum. Hann kendi henni aftur, sagði hún hafði tælt þau úteftir. Svo rifust þau í vonzku. Og þar kom að lokum, að hún vísaði honum út úr húsi, með alt sitt, einn góðan veðurdag. En húsaleigu gaf hún honum upp, eða lét hana mæta því sem systir hennar hafði hjálp- að upp á hana. — Þau fluttu allan farangur sinn út á hólinn fyrir austan húsið. Par stóðu þau yfir því, uppgefin og ráðalaus með öllu. Pór- unn kjökrandi með krakkana við hlið sér, og Sigurður hálf skjálfandi af hrygð, reiði og ves- öld. En þá vildi einmitt svo til, að Jón í Hvammi bar þar að. Hann varð ekki lítið hissa á að sjá þau þarna; um sjúkleik Sigurðar vissi hann áður, en að endirinn yrði svona, hafði hann aldrei gert sér f hugarlund.—Við höfum heyrt það áður, að Jóni var vel til Sigurðar; en auk þess var hann hjartagóður maður, og höfðingi í lund. Og hverjum hefði ekki runn- ið til rifja að sjá þau þarna? »Þetta tjáði eg þér í fyrravetur, er þú sagðir kotinu lausu, að þú mundir ekki feitan kött flá hár. Pú áttir aldrei hingað að fara, ekki einusinni láta þér detta það í hug. Pað var hin mesta yfirsýnd af þér. Peir eru svo marg- ir hér, sem verða að stunda þessa atvinnu, sökum þess, að þeir hafa ekki um annað að velja; þeir hafa engin tök til að lifa af land búnaði eins og við, og eru því frábitnir, eins og þú ert þessum störfum frábitinn. En hér eftir veiztu til hvers þú ert hneigður, og hleyp- ur ekki á þig í annað sinn. — Það stendur svo á fyrir mér, að mig vant- ar fjármann í vetur, og til þess starfa vildi eg engan fremur en þig; þessvegna bið eg þig nú að fara til mín. Konuna og börnin getur þú haft með þér; hún getur verið í húsmenzku; og unnið fyrir mat sínum ef hún vill. Kúna getið þið líka haft með ykkur, eg skal gefa þér fóðrið hennar; það væri sárt að drepa hana rétt fyrir burðinn.« — Pað varð löng þögn eftir að Jón hætti að tala. — En hún lýsti betur en nokkur orð svari hjónanna, og þakklæti þeirra. (Endir.)

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.