Nýjar kvöldvökur - 01.10.1913, Blaðsíða 16

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1913, Blaðsíða 16
232 NVJAR KVLÖDV0KUR bylgjubreidd) og ósýnilegir, í lengri geisla, sem augað getur skynjað. Hann notaði við rannsóknirnar úransambönd sem hafa þann eig- inlegléika, að þau lýsa mikið ef sterkt Ijós skín á þau. Nú vildi svo til að dimt var yfir, svo hann geymdi úransöltin í nokkrar vikur niðrí skúffu. Þetta gaf tilefni til hinnar merki- legu uppgötvunar, að þessi efnasambönd ekki einungis lýsa, heldur halda áfram að senda frá sér geisla með óþrjótandi styrkleik, jafnvel þó þau séu geymd í kolníðamyrkri; en vanaleg lýsing framléiðist einungis af ljósi. Ressir Ijós- geislar stöfuðu þá ekki frá dagsljósinu; og við nánari athugun sást, að þeir voru í mörgu frá- brugðnir vanalegum ljósgeislum. Reir gátu skinið í gegnum mörg önnur efni, sem annað Ijós ekki kemst í gegnum, þeir gátu verkað í myrkri á ljósmj ndaplötu, sem var geymd í þéttum kassa eða vafin í svörtum pappír, og þeir höfðu ennfremur þann eiginleika, sem hef- ur reynst mjög þýðingarmikill við rannsókn- irnar, nfl, þann, að gera loftið að góðum raf- magnsleiðara. En um sama leyti fann þýskur eðlisfræð- ingur Smith og frú Curie á Frakklandi, án þess hún þekti til rannsókna Smiths, að ýms efnasambönd málmsins thor sýndu öldungis sama háttalag og úransamböndin. Frú Curie kallaði nú öll þau efni, sem senda slíka geisla frá sér radíóaktív, og meinti þarmeð efni með geislamagni. *) Hún hélt að geislarnir stöfuðu frá málmunum úran og thor, og setti geisla- magn úrans = 1. Nú hlutu öll úransambönd að hafa minna geislamagn en sjálfur málmur- inn. Hana furðaði því eigi lítið á því, að biksteinn, sem er úranblanda, og einkum er mikið af í Jóakimsdal í Böhmen, hafði miklu meira geislamagn en úranið sjálft. Geislamagn- ið gat því eigi verið úraninu einu að þakka, heldur hlaut að vera innanum það annað efni, áhrifameira. Og hér gat eigi verið að ræða um neitt áðurþekt efni.heldur hlaut í bikstein- inum að vera eitthvert nýtt, óþekt frumefni, sem *) Orðið »geislamagn« hefur Þorkell kennari Þor- kelsson notað fyrstur um radíóaktívitet enginn hafði rekið sig á, vegna þess að það var svo lítið til af því. Stjórnin i Austurríki lét nú frú, Curie og mann hennar fá eina smálest af biksteini og nú tóku þau ásamt efnafræðingnum Beaumont að leita að þessu efni. Þetta var 1898, og nú hófst mjög vandasamt verk, að skilja í sundur og uppleysa öll þau efni, sem voru í steinin- um og skilja frá öll þcktu efnin. Eftir því sem verkið hélt áfram, sannfærðust þau um að þau væru á réttri leið, því geislaáhrifin jukust stöðugt og var auðvelt að mæla það, með því að loftið leiddi betur og betur rafmagn. Að lokum fundu þau eftir langa mæðu nýjan málm, sem var kallaður radium eða hið geisl- andi efni. En það er einkennilegast allra efna, sem hingað til hafa fundist. Geislaáhrif þess er erfitt að mæla nákvæmlega, en er nálægt því 2,000,000 (þegar úrans geislamagn er = 1.) Það er erfitt að gera skiljanlegt, hvað miklum vandkvæðum er bundið að finna radium, en um erfiðleikana gefur það dálitla hugmynd að í einni smálest af biksteini, er aðeins 10 — 20 sentígrömm af radíum. 1904 var ekki framleitt nema 1 gramm á Frakklandi af radíum og allar radíumsbyrgðir heimsins eru ]ennþá að- eins fáein grömm. Radíumsölt eru þessvegna dýrari öllu öðru, og verðið er nú hérumbil 300 kr. fyrir hvert millígram. Það er því mið- ur lítið útlit fyrir að unt verði að framleiða mikið af þeim. Radíóaktív úran- og thor-sam- bönd með geislamagni eru víða til, en alstað- ar í svo litlum mæli, að það kostar feiknin öll að framleiða radíum. Hreint radíum er hvítur málmur og atóm- þyngd þess er 226,5, með öðrum orðum tölu- vert þyngra en blý, eða næst eftir úran og thor þyngst allra frumefnanna. Eins og hvert annað frumefni framleiðir radíum sérstök spekt- ralbönd. Geislar þeir sem leggja út frá radíum og sem málmurinn hefur fengið nafn sitt af, eru mjög einkennilegir og í flestu ólíkir þeim geisl- um, sem vér vanalega köllum ^svo. Þeir eru ekki sama eðlis allir, heldur má aðgreina þá í

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.