Nýjar kvöldvökur - 01.11.1913, Síða 6

Nýjar kvöldvökur - 01.11.1913, Síða 6
246 NYJAR KV0LDVÖKUR »Pegi þú kona, þegi þú,« sagði skóla- meistari, því honum óx hugur við ádrykkjuna, »þegi þú, segi eg; eg vissi hvorki um það, að þú hafðir rottuboga í búrinu fyrir hendur mínar né heldur að þú hefðir brennivín fyrir munninn á þér. Og úr því eg lenti í öðru, var ekki nema mátulegt eg lenti í hinu líka; framvegis skal eg vatast hvorttveggja. Fáðu mér vatnsfatið, til þess eg geti dregið úr verk- junum í hendinni á mér, og berðu þig að út- vega Jakob eitthvað að borða — og láttu þér svo renna reiðina.« Kerling lét sér segjast, er hún sá að skóla- meistara var alvara, og fór nöldrandi burt. Köldu bakstrarnir drógu úr verkjum skóla- meistara og við tókum tal saman. Nú sagði eg honum alla sögu okkar; mint- ist eg á Tuma,' og þótti honum ilt að hann væri nokkuð i þingum við Marý, því að hún mundi aðeins leiða hann í villu og glötun. Rétt á eftir kom ráðskonan inn og var henni þá runnin reiðin; hafði hún vatnaskifti við skólameistara. Sýndi hann mér enn fram á að allur sjálfstæðisandi minn hefði verið einber hroki og kannaðist eg vel við það, en gat þess þó, að aldrei hefði Drúmmond ánýjað tilboð sitt, og sagði hann það satt vera, og enda búizt við að eg mundi ekki taka því. En hann sýndi mér fram á að hann hefði alt- af viljað mér vel, og verið vottur og ráðanaut- ur Turnbulls við erfðaskrá hans. »En hann hélt þú hefðir gott af því að temja huga þinn við herþjónustu um eitt ár, en altaf var hann sannur vinur þinn,« sagði skólameistari. »Rvf trúi eg vel. Eg vona að honum og fólki hans líði vel.« »Rað var alt með beztu heilsu seinast er eg vissi. En eg hef sjaldan komið þar síðan Turnbull dó. En Turnbull hnignaði mjög að heilsu af áhyggjum fyrir þér, eftir að þú fórst. Eg var við banasæng hans, Jakob, og eg held hann hafi verið vandaður maður og fái góðra þjóna laun. En undarlega talaði hann, svipað- ast eins og þessi mannspartur, sem þú kallað- ir Tuma. »Og það er ekki til neins,« sagði hann. ’sitjandi í stólnum sínum; það var hlað- ið um hann koddum, og hann var ekkert orð- inn nema beinin og gekk upp úr honum tært blóðið, »að vera að hella í mig þessu gutli frá læknunum. Akkerið mitt er til, og eg fer bráðum að draga það upp til þess að hefja ferð mína til himnaríkis. því að eg vona að eg eigi þar góða höfn vísa.« »Eg vildi feginn skilja þig,« svaraði eg, »en þú talar í líking- um og dæmisögum.« »Ja það er það sama og dauðinn hefur keyrt í mig skutulinn sinn upp að skafti og mér er ekki til neins að stríða á móti. Færið mitt er runnið á enda. Bráðum verð eg þar uppi — heilsaðu Jakob kærlega frá mér — hann frelsaði einusinni líf mitt — en nú er úti um mig;« svo dó hann; svona andað- ist velgerðarmaður þinn, Jakob, og bað þér allrar blessunar.« Eg þagði um stund, því frásögn skólameist- arans tók á mig. En svo spurði hann: »Ertu ekki enn búinn að koma til Drúmmonds?« »Ekki enn; eg ætla að koma þangað á morgun. En nú veitir mér ekki af að fara, ef eg á að ná til Lundúna.« »F*ess þarftu ekki. Húsið þitt er hérna nærri, Jakob.« »Húsið mitt?« »Já. Turnbull lét konu sinni eftir nægilegt fé til viðurlífis, en húsið og húsgögnin féllu eigi í hennar hlut, en ástæður færði hann ekki fyrir þeirri ráðstöfun, heldur í þinn hlut sem einka- erfingja.« »En hvar er þá frú Turnbull.« »Hún settist að í Bath. Drúmmond var fyrir þína hönd hér og leyfði henni að taka með sér það sem henni sýndist, en hún tók fátt með, helzt ýmislegt smádót, sem fremur er stofum til fylla en prýði. Húsið bíður þín albúið og þú getur farið þangað þegar í kvöld.« »En því lét hann ekki frúna hafa húsið?« »Eg veit það ekki, en líklegt þyki mér það hafi verið, að hann hafi ekki viljað að hún ætti hér heima. Hann lét henni því eftir fé til þess að hún gæti keypt sér hús annarsstaðar og sezt þar að.«

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.