Nýjar kvöldvökur - 01.11.1913, Side 9

Nýjar kvöldvökur - 01.11.1913, Side 9
JAKOB^ÆRLEGUR 249 aTveim dögum eftir að eg boðaði gömlu hjónunum lausnarvon Tuma, sat eg heima og var að borða morgunverð. Þá vindur Tumi sér alt í einu inn í stofuna, hann réttir mér hönd- ina með mestu kæti, eins og hann var vanur, og heilsar mér. »Tumi,« sagði eg hissa, »hvað er þetta? því ertu hér?« »Kom vatnsleiðina, auðvitað.« »En hvernig ertu laus? er skipið komið heim?« ^Það held eg ekki; en eg losaði mig sjálf- ur.« »Hvað? Straukstu?« sJá, það gerði eg, og hafði þrjár ástæður hl þess. Ein var sú, að eg undi mér ekki án þín; annað var að mamma skrifaði mér að Marý væri á flökti með dáta, og sú þriðja var sú, að eg var ákveðinn til hegningar og átti að fá kött.« *) *Nú, segðu mér nú altsaman. Þú veizt að Þú hefur fengið lausn.« sJá, þakka þér fyrir það Jakob; þeir leita Þá ekki að mér. Ef alt endar vel, þá er alt gott. Þegar þú varst farinn, var eg auðvitað ekki í sem bez(u skapi, og bannsettur karlinn, sem pressaði okkur, þóttist mega hunza mig Ur hófi fram. Einn daginn bar hann upp á mig 'ygi, og þá gleymdi eg, að eg var á herskipi, °g svaraði honum, að hann væri helvízkur svika- hrappur, og honum væri nær að borga mér g'neurnar, sem eg ætti hjá hoiium fyrir það að róa undir honum ofan ána. Svo klagaði hann m'g á þiljunum fyrir það að eg hefði nefnt hann svikahrapp, og kapteinninn er nú, eins °S þú veizt, hann tekur ekki vel slíku gamni; hann yfirheyrði báða aðila, sagði að stýrimað- Ur'nn hefði ekki hagað sér sem offiseri og heið- Ursmaður, og yrði hann því að víkja af skip- ltlu> en orðalag mitt hefði verið óhæfilegt á móti heraganum, og ætti eg því að fá dugleg- 311 kött. En þó offiserarnir borgi ekki ætíð það ^^þeim ber, borgar þó kapteinninn alténd ) Köttur er svipa til að húðstrýkja menn með á herskipum. sínar skuldir og það með rentum. Og þegar eg sá að þetta var afgert mál, synti eg í land kvöldið fyrir imbrudag og hef svo komizt æf- intýralítið hingað á timburskipi — og hér er eg nú.« »Samt þykir mér iit að þú straukst; það getur haft illar afleiðingar.« »Engin hætta; fólkið á fljótinu veit, að eg hef fengið Iausn, og þá er mér óhætt.« »Hefurðu séð Marý?« »Já, og það er alt í góðu lagi þar. Eg fæ mér annan bát, tek ferjumannaföt mín og merki og held til fyrir ofan brýr. Svo þegar öllu er óhætt, gifti eg migog bý hjá karli og kerlingu.* »Heldurðu Marý kunni við sig þarj? það er svo einmanalegt þar, að eg held henni leið- ist þar.« »Marý Stapleton er nú búin nógu lengi að fara eftir eigin geðþótta, svo að Marý Bease- ley verður að vera eins og maðurinn hennar vill — eða ég vil vita ástæðuri.ar.* »Við skulum nú sjá, Tumi; en nú þarftu peninga, til þess að kaupa bát.« »Já, ef þú vildir lána mér þá. Eg vil síður fá þá hjá karii og kerlingu, og skal borga þér þá þegar eg get.« »F*á verður þú nú að þiggja, Tumi, og þegar þú giftir þig, verður þú að þiggja enn þá meira,« sagði eg og rétti honum seðlana. »Eg tek boði þínu með mestu þökkum, Jakob; úr þvi eg get aldrei endurgoldið þér, er eins gott að eg bæti við skuldirnar hjá þér.« »Það er vel hugsað, Tumi.« »Eins vel ^eins og sjalfstæðisbrutlið — er ekki svo, Jakob?« »Miklu betra — það hef eg reynt sjálfur,« svaraði eg hlæjandi. Þegar Tumi var farinn, gekk eg niður að fljóti, losaði bát minn og reri upp eftir ánni. Hélt eg áfram þangað til eg var kominn gagn- vart aðsetri Wharnecliffes, sá eg að karlmaður og kvenmaður voru þar á gangi úti í garðin- um; þekti eg þau þegar; þau stóðu fast út við múrinn, og reri eg því að múrnum og heilsaði þeim, 32

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.