Nýjar kvöldvökur - 01.12.1958, Side 22

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1958, Side 22
4 KÆRLEIKUR, LÍF OG STARF N. Kv. tveir hugdjörfu sjáendur bundið skóþvengi sína á vissu tímabili sögunnar, er elcki með öllu útilokað, að kreddunnar menn hefðu í nafni kirkju Krists fyrirmunað þeim að ganga á jörðinni og horfa á himininn, a.m.k. um stundarsakir. Guðmundur skáld á Sandi ávarpaði Drottin eitt sinn á efri árunum í kvæði á þessa leið: „Reyndu, vaðbergs vörður, vað að mínum stalli.“ Þetta þótti hókstafstrúarmönnum léleg bæn. En áreiðanlega þurfti enginn að kenna skáldinu og bóndanum á Sandi að biðja guð sinn. Og líklegt má telja að drottinn hafi fundið gneista í gagnteknu hjarta í ávarpi skáldsins, þótt orðbragðið væri ekki væmið. Þá var það Stephan G. Stephansson trú- laus talinn af ýmsum og jafnvel illa siðað- ur. Ymsum þótti kvæði hans um sannleik- ann mikið guðlast, en það er ekki last held- ur lof um guð, sé það lesið vel og rétt. Skáld- ið lítur á sannleikann sem lögmál tilverunn- ar allrar, lög mannlífsins í heild og guð er höfundur þessara laga, þessa lögmáls — sjálfur löggjafinn. Augljóslega er þá fyrst fullt samræmi í löggjöfinni og hún fullkom- in að eðli og gildi, að hún fullnægi öllu rétt- læti og öllum beri að lúta henni og hlýða, sjálfum höfundinum, löggjafanum líka. Vatnsmikið fljót kemur frá uppsprettum í óbyggðum og fellur um sléttur og lægðir víðáttumikillar byggðar. En fljótið hefur sinn farveg, á sína bakka, ef það væri ekki svo, félli það yfir byggðina, allra fjallanna á milli, eyddi gróðri og eyðilegði lífsmögu- leikana. — Árstraumurinn er hin óstöðv- andi, óstökkvandi framrás tímans, fram- þróunin sjálf, frá guði komin með guð í förinni, því sjálfur er hann í þróuninni eins og hann er í dyggðinni. En bakkar fljótsins er lögmál hans, sem heldur öllu í skefjum. Sá, sem ann löggjöf drottins í hans eigin tilveru um alla hluti fram, er bæði djúpsýnn maður og framsýnn. Það er bæði lífstrúarmaður og guðstrúarmaður, sem segir þessi speki-orð: „Sjálfur guð má sig fyrir honum beygja.“ „Aldrei fýkur fis né strá fram úr alvalds hendi,“ er hliðstætt. Menn tala mikið um trúarlærdóma, trú- arkenningar, trúarform, trúarkerfi, trúar- kreddur, en gæta þess ekki, að þetta á furðu lítið skylt við trúarþelið, trúarvitundina, sem er kjarni málsins og eitt skiptir alvar- legu máli, því hún er aflvakinn, sem ber allt hitt uppi, sem eru fyrst og fremst um- búðir utanum kjarnann. Og þennan kjarna er ógerlegt að greina, vega, eða mæla með mælitækjum, vitsmuna, hygginda, sem í hag koma, eða fræðilegri þekkingu. Sá eini kvarði, sem þessi vitund, þessi kjarni er mælanlegur á, er kærleikurinn sjálfur, djúp- stæður algildur kærleikur, en því miður er þessi kærleikur ekki fyrir hendi nú og hef- ur ekki verið um langan aldur, því enginn hefur átt hann nema Jesús Kristur einn. En það er hægt að öðlast hlutdeild í þessum himinshreina kærleika, ef mikilli alúð og mikilli þjálfun er beitt. Og Jesús einn allra sagði fyrir um, hvernig það mætti verða. „Það sem þér viljið að mennirnir gjöri yð- ur, það skulið þér og þeim gjöra,“ sagði hann, og hann sagði einnig: „Biðjið fyrir þeim, sem ofsækja yður og rógbera.“ Og ennfremur sagði hann, og það ef til vill djúpstæðustu og alvarlegustu orðin, sem hann talaði til samtíðar sinnar og læri- sveina. IJann sagði: „Það sem þér gerið minnsta bróður mínum, það gerið þér mér.“ Hafa menn gert sér fulla grein fyrir hinu hamingjuríka gildi þessara orða hans? Nei, áreiðanlega ekki. Öll eigum við áreiðan- lega eftir að nema gildi þeirra, svo himin- há og hrein er merking þeirra — svo djúp-

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.