Nýjar kvöldvökur - 01.12.1958, Page 27
N.Kv.
KÆRLEIKUR, LÍF OG STARF
9
myndu þá ekki hika við að brenna borgir
og vega menn. Við, sem skynjum og viturn
hve kirkjan oft er uppljómuð af sendiboð-
um himnanna, þurfum ekki endilega að
lesa gamlar bækur til þess að gera okkur í
hugarlund, hvað muni hafa gerzt á Betle-
hemsvöllum forðum, er Jesúbarnið fædd-
ist. Það hafa ýmsir kornizt nær ljóma þeirr-
ar dýrðar eftir öðrum leiðum en lestri bóka,
þótt góðar séu og ágætar.
Því verður ekki móti mælt, að sálarrann-
sóknirnar hafa upplýst og staðfest ýmiss
lconar lýsandi og leiftrandi andlegan veru-
leika í samræmi við grundvallaratriði frum-
kristninnar og lifandi kristindóm, sem lík-
legur er til þess að hæta sambúð manna og
þjóða. Og vafalaust hefði kirkjan verið bú-
in að ná meiri og betri tökum á því mikil-
væga viðfangsefni, hefði andi hennar „sem
lífgar“ ekki verið um of fjötraður af bók-
staf hennar, sem „deyðir“.
Sá kærleiksandi' og sannleiksandi, sem
Jesús kom með inn í þennan mannheim og
þetta mannlíf, er langt hafinn yfir allan
hókstaf og alla fræðimennsku. Það er þessi
gróðrarmáttur, þessi vaxtarbroddur, sem er
svo heillandi og fagnaðarríkur í boðskap
Jesú — þessi vorblær og vorilmur elskunn-
?.r og ástúðarinnar, innbyrðis í lífi mann-
anna, sem Jesús lagði svo mikla áherzlu á,
og er undanfari allrar sannrar uppskeru í
ríki andans. Við erum ennþá beðnir þess
svo heitt, að vinna fyrir þetta samfélag með
hæn og starfi — þetta samfélag, sem tilheyr-
ir bæði jörðinni og himninum. Við höfum
ekki verið beðin þess eins innilega og nú,
að elska „hver annan“. Það er alltaf kjarn-
inn í þeim boðskap, sem við fáum „að hand-
an“. Þegar vélaskröltið er að lama tilfinn-
ingarnar og setja hjartað úr skorðum, og
hagsmunaátökin og hagsmunastreitan er að
gera hugarástandið óbærilegt, er eitt, sem
Órðsending
tii kaupenda Nýrra kvöldvakna.
Að þessu sinni fylgir 51. árgangi endur-
gjaldslaust sérstakt jólablað til kaupenda.
Mun því verða haldið áfram svo framarlega
að afkoma blaðsins leyfi.
Nýjar kvöldvökur óska öllum lesendum
sínum gleðilegra jóla og góðs komandi árs.
Jafnframt þakka þœr öllum kaupendum
tryggð þeirra við ritið og skilvísar greiðsl-
ur. —
Sérstaklega vill ritið þakka umboðsmönn-
um um land allt ágœt störf í þágu þess og
vonast til að njóta þeirra sem lengst.
Að gefnu tilefni viljum vér taka fram, að
aðeins þeim áskrifendum, sem skipta beint
við útgáfuna voru sendár póstkröfur, þeim
að kostnaðarlausu, fyrir áskriftargjöldun-
um. Að sjálfsögðu ber öllum þeim kaupend-
um sem skipta við umboðsmenn, að greiða
þeim árgjaldið eins og verið hefur.
r
Utgefendur vilja vinsamlegast beina
þeim tilmælum til áskrifenda, að greiða um-
boðsmönnum sem fyrst og létta þannig störf
þeirra.
getur bjargað og aðeins eitt: fagurfræði
ljóðsins, fagurfræði guðstrúarinnar •— guð
leyndardómanna í himnunum.