Nýjar kvöldvökur - 01.12.1958, Page 28

Nýjar kvöldvökur - 01.12.1958, Page 28
10 N.Kv. Ingólfur Krisfjónsson: Björgun úr sjávArbúsb n jölnkvöM Eftir frósögn Eiríks Kri stóferssonar, skipherra. 1. Störf og skyldur íslenzku varðskipsmann- anna eru tíðum með nokkuð öðrum hætti en annarra sjómanna. Oft verða þeir að vera á hafi úti, þegar önnur skip leita hafna; það fellur í þeirra hlut að vera úti í hörðustu veðrunum til eftirlits og bjargar, ef eitthvað bjátar á. Hlutverk varðskipanna er tvíþætt. Annars vegar varðstaðan um landhelgina og hins vegar björgunarstörf og aðstoð við bátaflotann og önnur skip, sem á skyndiað- stoð þurfa að halda. Þannig eru varðskip- in nátengd slysavarnastarfseminni ■— þau íækja slysavarnirnar á sjónum. Elzti starfandi skipstjóri landhelgisgæzl- unnar er Eiríkur Kristófersson, skipherra á „Þór“, hinn reyndi og trausti sævíkingur, sem svo mjög hefur komið við sögu'undan- farna mánuði í landhelgisstríðinu við Breta, en frá 1. september er hann búinn að birta um 90 brezkum togurum kærur fyrir veiðar í landhelgi — sumum allt upp í 20 sinnum, og margar af aðgerðum hans gegn landhelgisbrotunum hafa orðið fréttaefni í stærstu heimsblöðunum. En þó að Eiríkur Kristófersson sé ef til vill þekktastur fyrir ötula framgöngu við vörn landhelginnar, þá er ekki minna um vert það starf, sem hann hefur leyst af hendi við bjarganir þau nálega 35, ár, sem Þessi mynd er tekin urn borð í „Þór“ á Húsavík, er jorseti íslends, hr. Ásgeir Ásgeirsson, kom jjangað í opinbera heimsókn. A myndinni eru, tal- ið jrá vinstri: Júlíus Havsteen, jyrrv. sýslumaður, Hendrik Sv. Björnsson, þáverandi forsetaritari og Eiríkur Kristófersson, skipherra. hann hefur starfað á vegum landhelgisgæzl- unnar. Alls hefur Eiríkur verið við björg- un og aðstoð 540 skipa á þessu tímabili, og hefur þar verið um að ræða skip af ýmsum

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.