Tímarit þjóðfélagsins - 01.01.1916, Page 20

Tímarit þjóðfélagsins - 01.01.1916, Page 20
20 varkárt með. En helzt þurftu þau að vera eitthvað öðruvísi en þekst hafði áður. Einn skýrði sig Kaldalóns og þótti skrautnafn. En það halda gamlir menn að eitthvað muni minna á það þessi vísa: Allir vilja ættinni æfi- létta -tjónið. Mjög er unnað ungfrúnni, — -----allir virða »lóniðí. Margir flugust á um viðurnefni, sem menn höfðu fengið á írlandi í fornöld, og héldu að það væri ættarnöfn. Kvaran þótti til dæmis sérlega gott. Ól- afur konungur íra var kallaður kvaran af því hann kom þar í loðskinnsleistum, en sá hlutur hét á írsku kvaran. Vér mundum hafa sagt Ólafur skinn- leistur eða á skinnleistunum. Ein vísa, sem kunn er, minnir á að það nafn hafi einhver tekið sér um þetta leyti: Skolli varð honum Einari á. Um er spurt, hvort honum raddir andans ómi frá eða skinnleistonum. Yfirleitt völdu allir nöfnin svo prýðilega, að niðj- arnir, lið af lið, eftir því sem þeir koma til vits og ára, hljóta að dáðst að hugðnæmi og fegurðartil- finningu feðra sinna. En þeim til hægðarauka, sem ekki hafa ennþá látið lögskrá sér ættarnöfn, vildum vér að endingu stinga upp á nöfnum, sem einhverjum kynnu að falla í geð, eins og t. d. Lóstar, Titlvaz, Nautfer, Raufon og Ranghalan. Þau hafa eflaust af vangá ekki verið tekin með í hið fagurfræðilega ritverk nafnanefndarinnar. Tvibeinn.

x

Tímarit þjóðfélagsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit þjóðfélagsins
https://timarit.is/publication/525

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.