Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 12.06.1960, Page 40

Sjómannadagsblaðið - 12.06.1960, Page 40
Jónas Árnason: RAGNAR POKAJV Reynir þú að rægja hann Ragnar gavila pokamann í mitt kalda eyra, skal ég sjálfur sýna þér, hvað sjómannshnefi kreyptur er. og máski dálítið meira. Hann hafði lítið lært á hók og lítil fræði kunni enda var hann hara hlók á hotnvörpungnum Unni; próf hann samt með sóma tók og sína vizku talsvert jók austur á Hvalhak, útá Strók eða á Selvogsgrunni, á vertíðinni suðrá Selvoggsrunni. Bærist afli inn á dekk einsog það gat horið, svo menn óðu villivekk vel í mitti slorið, í aðgerð þ'am hann ólmur gekk eins og Jjón í geitastekk, en fáir hafa af fínni smekk af fiski hausinn skorið, af fiski hausinn fagurlegar skorið. Og lika þegar allt var í einu djöfuls volli, hlerar hrotnir, hafarí og hundrað göt á trolli, kunni hann með kurt og pí að kippa öJJu í Jag á ný, þó hýsn hann gæti höJvað því hæði í dúr og molJi; sumt í dúr, en meira þó í molli.

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.