Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 12.06.1960, Blaðsíða 55

Sjómannadagsblaðið - 12.06.1960, Blaðsíða 55
Sjómannaheimili í Álaborg Meðan á byggingu v/s „Óðins“ stóð, dvöldum við nokkrir Islending- ar í sjómannaheimilinu í Alaborg, og langar mig til að lýsa því í nokkr- um orðum fyrir íslenzkum sjómönn- um. Hús þetta er nýbyggt, var vígt 9. nóv. 1958. Það er fjórar hæðir og kjallari, byggt úr múrsteini með steyptum loftum og að flestu leyti líkt nýtízku meðalflokks-hóteli, enda algjörlega rekið sem slíkt, nema hvað sjómenn eiga þar forgangsrétt til gistingar; þangað sækir að auki til gistingar úr öllum stéttum, og mun láta nærri, að það sé nú vin- sælasta „hótel“ borgarinnar. Þó er það eitt, sem að verulegu leyti skilur þessa stofnun frá hótel- um, nefnilega það, hve vel hefur tek- izt að skapa þar „heimilisanda“, sem allir virðast kunna vel að meta. Þar á forstöðumaðurinn, starfsfólk hans og fjölskylda stærstan hlut að máli, en að öðru leyti vissulega eðlileg af- leiðing þess, að oft gista þarna sam- tímis heilar skipshafnir eða hluti þeirra. Þeir, sem fyrr hafa kynnzt sjó- mannaheimilum, munu minnast þess, að allstrangar reglur giltu þar um ýmislegt, t. d. var lokað kl. 12 á kvöldin og yfir nóttina voru þar lok- aðar dyr. Þetta er nú úr sögunni á mörgum stöðum, og mun sjómanna- heimilið í Álaborg hafa haft þar for- göngu. Forstöðumaðurinn þar sagði eitt sinn, að með hækkandi launum og lífskjörum hefðu sjómenn fengið meira fé til gæzlu — og gættu þess betur. I kjallara hússins eru tvær „billi- ard“-stofur, ljósmyndaherbergi með beztu tækjum, smíðaherbergi og lít- ill samkomusalur til ókeypis afnota fyrir gestina. Á 1. hæð eru anddyri, skrifstofa, lesstofa, dagstofa, borðsalir, eldhús og íbúð forstöðumanns. Á 2. hæð gistiherbergi og íbúðir starfsfólks, og 3. og 4. hæð gistiher- bergi. Böð og snyrtiherbergi eru 4 á hvorri hæð. Herbergin eru búin rúmi, skrifborði, skáp og stól, og í litlu lokuðu anddyri hvers þeirra er fataskápur og handlaug. Tveggja manna herbergi eru þar 13 að tölu (sem nauðsynlegt er vegna þess, hve mjög það færist í vöxt að yfirmenn skipa búi þar með konur sínar með sér), búin tvöföldu rúmi, sófa, skrif- borði, stólum og baðklefa. Samtals geta rúmazt 80 gestir. Síðastliðið ár (1959) bjuggu þar um 2500 sjómenn lengri eða skemmri tíma, og því nær jafnmargir aðrir gestir. Þar af voru t. d. 101 skipstjóri, 209 stýrimenn og 339 vélstjórar. Ein er sú tegund þjónustu þarna, sem vert er að minnast á. Það er geymsla peninga fyrir gestina. Voru síðastliðið ár geymdar 347 þús. kr. lengri eða skemmri tíma. „Indenlandsk Sömandsmission“ heitir félagskapur sá, sem á sjó- mannaheimilið. Það á samtals 44 sjó- mannaheimili; þar af 1 í Grimsby og 1 í Thorshavn. Hvert þessara heimila er rekið sem sjálfstæð stofnun. T. d. kostaði heimilið í Álaborg IVz millj. d. kr. Þurfti að taka % af því til láns, og stendur sjálft undir vöxtum og afborgunum — enda ber það sig vel fjárhagslega, þótt öllu verði sé stillt mjög í hóf. Félagsskapur þessi, Indenlandsk Sömandsmission, starf- ar, eins og nafnið bendir til, á trúar- legum grundvelli. Tvö kvöld í viku voru því á heimilinu samkomur; kvöldkaffi, trúarleg hugvekja lesin og sungnir 2—3 sálmar, og varð ég þess ekki var, að neinum mislíkaði, miklu fremur hygg ég, að menn hafi þá fremur en ella haldið sig heima. En á hverjum morgni var þar stutt , ,morgunandakt‘ ‘. Við áttum þarna hina beztu vist, og munum seint gleyma — t. d. jól- unum. Og oft varð okkur hugsað til þess, hvílíkur þæginda- og menning- arauki það væri okkur íslenzkum sjómönnum að eignast slíka stofnun hér í Reykjavík. Mér hefur það oft orðið á í þessum orðum, að minnast forstöðumanns- ins. Hann, fjölskylda hans og starfs- fólk lét ekkert tækifæri ónotað til að sýna gestum vináttu — og átti það ekki hvað sízt við okkur íslend- ingana. Lítilfjörlegan þakkarvott sýndum við um jólin með því að gefa heimilinu fallega myndabók frá ís- landi, og seinna með því að bjóða honum í reynsluferð „Óðins“. Eg get vel endað þessi orð með skilaboðum frá honum til íslenzkra sjómanna. Hann sagði, að þá væri orðið þröngt hjá sér, ef hann úthýsti ís- lenzkum sjómanni. Jón Einarsson. Starfsmenn sjómannaheimilisins. Forstöðu- maðurinn yzt til hægri. SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.