Eimreiðin - 01.01.1946, Blaðsíða 62
42
NAZISMINN ÞÝZKI
KIMREIÐIN
ánauðinni til þess að pína sem mestan gróða undan hinum blóð-
uðu nöglum bændanna.
Furstarnir þurftu mikið á þeim gróða að halda til að standast
samkeppnina við hina nýríku borgaralegu iðjuhölda og stór-
kaupmenn. Allt þetta varð orsök þeirra miklu stéttarstyrjalda,
sem vér nefnum bændastríðin þýzku.
Svo fóru leikar, að furstar og hertogar og málaherir þeirra
gersigruðu bændurna. Síðan gátu furstarnir þýzku sveigt borg-
aralegu stéttirnar undir yfirráð sín smátt og smátt. Þeir af furst-
unum, sem aðhylltust kenningar Lúthers, notuðu sér siðaskiptin
til að hrifsa undir sig eignir kirkjunnar. Á þann liátt óx veldi
þýzku lénsfurstanna og á sama tíma og lénsfurstar hurfu úr
sögunni í öllum öðrum Evrópulöndum. Þýzkaland dróst þar
með aftur úr í þjóðfélagslegri þróun. Siðabótamaðurinn Lútlier,
sem á þessum tíma liafði svo rnikil áhrif í Þýzkalandi, var aðeins
•framfaramaður í trúarlegu og menningarlegu tilliti. 1 stjórn-
málalegu tilliti var hann aðeins furstaþjónn. Meðan á bænda-
stríðinu stóð, lét Lútlier svo unnnælt: „Asninn verður að fá
högg og skrílnum verður að stjórna með valdi. Þetta vissi guð,
og þess vegna fékk hann yfirvöldunum í hendur ekki tóuskott,
heldur sverð. Þess vegna verðið þið, góðir hálsar, að aumkva
ykkur yfir veslings fólkið. Stingið, liöggvið, sláið, drepið nú
hver sem betur getur“. Svona hefðu Hitler og Göring getað talað.
Tilraun þýzku alþýounnar til að brjóta á bak aftur furstana
með uppreisn neðanfrá liafði ekki heppnazt. Tilraun keisaranna
til að brjóta þá á bak aftur ofan frá heppnaðist ekki lieddur,
en leiddi aðeins til þeirrar miklu styrjaldar, sem nefnist þrjátíu
ára stríðið. Því lauk með algjörum ósigri keisarans, mest fyrir
aðgerðir Frakka og Svía. Þýzkaland liðaðist sundur. Keisarinn
varð eftir þetta aðeins keisari í Austurríki, Bæheimi og Ung-
verjalandi.
Að nafninu til viðurkenndu þýzku smáríkin keisarann sem
herra sinn, en í Napóleonsstyrjöldunum leið þýzka keisaradæmið
alveg undir lok. Árið 1815 mynduðu þó þýzku ríkin þýzka sam-
bandið. Upp úr því myndaði Bismarck Iiið nýja þýzka keisara-
ríki undir forystu Prússlands, árið 1871.
Hin nýja sameining hafði kostað 3 styrjaldir og verið fram-
kvæmd með blóði og járni. Austurríki hafði verið útilokað úr