Eimreiðin - 01.01.1946, Blaðsíða 98
78
RITSJÁ
EIMREIÐIN
brögðum og daglegu lífi, og fjölda
fólks bregður þar fyrir. Erlendur á
Breiðabólsstöðum liefur verið merk-
isinaður og kjarnakarl, og séra Jón
segir hispurslaust og fallega frá. Bók-
in er smekkleg, með mörgum og
góðum myndum og teikningum.
(Útg.: ísafold).
Enn er ein liók um þjóðbáttalýs-
ingar. Það er ný útgáfa á íslenzkum
þjóSháttum séra Jónasar á Hrafna-
gili (með formála eftir Jónas Jóns-
son, útg.: ísajold). Þetta er það klass-
iska rit okkar um þessa fræðigrein.
Það er fullt af skemmtilegum, fjöl-
breyttum fróðleik í skibnerkilcgri og
notalegri frásögn séra Jónasar. Frá
sjónarmiði þeirrar svonefndu gagn-
rýni, sem telur að í slík rit eigi að
hrúga öllu, sem Iiönd á festir og
gerir sig merkilega á því að telja upp
það, sem vantar, má sakna margs í
liók eins og þjóðbáttum. En það er
sitt bvað að skrifa registur um menn
og málefni og að skrifa sögurit. Það
inætti íslenzk sagnfræði gjarnan
Ieggja sér á lijarta. Fróðleikur og
víðtækir aðdræltir á efni eru nauð-
synlegir og góðir. En vísindi og list
sagnaritunarinnar eru fólgin í því
að velja og bafna úr þessu og skapa
úr því bvert sinn Ijósa mynd og líf-
ræna heild. Það er nauðsyn að bafa
bvorttveggja, stór heildar- og yfirlits-
rit og sérrit um einstök atriði. ís-
lenzkir þjóðhættir eru ágætt yfir-
litsrit, þægilegt og skemmtilegt, fal-
lega úr garði gert og myndskreytt.
Þrot fyrstu útgáfunnar sýna vinsæld-
ir verksins.
Eitt ágætt íslenzkt sögurit er einn-
ig komið út á ný, (hjá Helgafelli),
það er Ævisaga séra Jóns Steingríms-
sonar, gefin út af Guðbrandi Jóns-
syni, en dr. Jón Þorkelsson sá um
fyrri útgáfuna. Þetta er líklega ein-
lægasta og hispurslausasta sjálfslýs-
ing, sem til er á íslenzku, og einhver
merkasta aldarfarslýsing. Hún keinur
nú fram í fegurri og snyrtilegri bók-
arbúningi en áður. Séra Jón Stein-
grímsson var hetja á örlagatímum,
guðs lietja frammi fyrir eilífðinni og
heilagleika tilverunnar, og fátækur
breyzkur maður, í basli og vesöld
og andstreymi, í ástum og gleði lífs-
ins, maður með nænian smekk fyrir
hvorutveggja, guðs orði og gamni
inannanna, eins og sumar sögur hans
sanna. Hann var maður gæddur
kjarki og liörku í svaðilförum og
deilum og með auðmýkt bjartans.
Saga Jóns Steingrímssonar er ein af
merkustu Islendingasögum, sem til
eru.
Saga annars cinkennilegs manns er
einnig nýkomin út, (hjá Heimdalli)•
Það er Fertiasaga Árna Magnússonar
frá Geitastekk, gefin út af dr. Birni
K. Þórólfssyni, hinum lærðasta og
vandvirknasta manni. Árni lenti í
mörgum ævintýrum. Haun var ein-
kennilegur og um leið skemmtilegur
óráðsíumaður, fullur af útþrá og æv-
intýrahug. Hann fór til Rússlands og
Kína og víðar um heim og fékkst
við margt. Hann segir skrítilega og
skemmtilega frá þessari lífsrevnslu
sinni.
Nokkrar þýddar fróðleiksbækur,
sem fengur er í, bafa einnig koinið
út. Undur veraldar lieitir safnrit, sem
Ilarlow Shapley og fleiri liafa tekið
saman uni sögu ýmsra vísinda og
margvísleg undur þeirra, en 17 's-
lenzkir fræðiinenn hafa Jiýtt bókina.
(Mál og menning). Greinarnar erii
að vísu sundurleitar og sin úr liverri
áttinni, en brcgða allar með ein-
liverjum liætti birtu yfir ýms vanda-