Eimreiðin - 01.01.1947, Page 37
EIMREIÐIN
VESTUR-ÍSLENZK SKÁLDKONA
17
nefnist, og nokkur clrög að leik um Ragnheiði Brynjólfsdóttur,
skrifuð í andmælaskyni við Skálholt Kambans. Framlialdsútgáfa
af ritum Guðrúnar er nú í prentun.
„Manninum mínum, Gísla Jónssvni, lileinka ég sögur þessar“,
skrifaði Guðrún framan á Hillingalönd, og var það af þeirri
orsök, meðal margra annarra, að hún kvað hann ávallt hafa
hvatt sig til ritstarfanna, eftir að liann komst að því, að hún
fékkst við þau, en framan af fór liún dult með það. Sjálf lét
hún lítið yfir þessum verkum sínum, taldi þau lijáverk og
tækifærisverk, henti á, hve margt væri þar af jólasögum, skrifuð-
nm eftir beiðni.
V.
Sögur Guðrúnar eru allar úr vestur-íslenzku þjóðlífi. Það
kann að virðast undarlegt, að liún skyldi aldrei beint velja sér
efni að heiman, jafn-trygg og liún var ættlandinu og æskustöðv-
unum. Vera má, að hér vahli það nokkru urn, að hún fór ekki
að skrifa, fyrr en hún hafði verið hátt á annan áratug vestra.
Það er reynsla þessara þroskaára vestra, sem speglast í sög-
unum. Reynsla liennar sjálfrar og annarra, fengin fyrir drjúga
þátttöku hennar í kjörum landa sinna. Hún skráir* sögu inn-
flvtjandans frá hans eigin sjónarmiði í ýmsum myndum.
Þessi saga er aRtaf undir niðri liarmsaga. 1 ríki útlendinganna
f^veða við sömu raddir og Jón Helgason heyrir í liúminu í
Árnasafni:
Hvíslar mér jafnan á orðlausu máli hér inni
eyðingin liljóða, en þótt hún sé lágmælt að sinni,
vinnur hún daglangt og árlangt nm eilífðar tíðir,
örugg og máttug, og hennar skal ríkið unt síðir.
„Ævilaun útlendingsins“, segir Guðrún, „eru oftast rýr, og
ávallt hin sömu: Honum er gefið land að vísu, en ltann gefur
1 staðinn ævina, heilsuna og alla starfskraftana. Já, landið tekur
liann sjálfan, líkama og sál, og hörnin hans í þúsund liðu“.
Þetta er úr sögunni „Fýkur í sporin“, en sú fvrirsögn gæti
verið inngangsorð að öllum sögum Guðrúnar. Vitundina um þessi
orjúfanlegu rök ltillir allsstaðar uppi í haksýn og gefttr sög-
unum clýpt og þunga.
Þessi vitund liefur misjöfn áhrif á fólk eftir upplagi þeirra.
2