Eimreiðin - 01.01.1947, Blaðsíða 78
58
SVEITIN BYGGIST
EIMREIÐIN
Hún veit allt sem gerist í alheiminum, allt sem liefur gerzt og
allt, sem á eftir að gerast. Hún skapar allan alheiminn í hverri
einustu lífveru og gefur liann allan, hverjum einasta einstaklingi•
Hún þekkir allar lifandi verur, smáar og stórar, sýnilegar og
ósýnilegar, en liefur þó aldrei lieyrt nöfn þeirra. Hún er óliáð
tíma og rúmi og eldist því ekki um einn dag, þó aldir og eilífðir
líði. En liún heldur alltaf áfram að vaxa og þroksast að viti og
kærleika. Hún á ekkert lieiti og mun aldrei hlotnast nokkurt
mannlegt lieiti.
— Vér verðum því að neyðast til að nefna hana guð.
* *
*
Og guð leit yfir óbyggðar eyjar Kyrrahafsins.
Það eru eyjar allsstaðar í höfunum, segja þeir fróðu, og satt
mun orðið. Sumar eru örskammt undan ströndum meginlandanna.
Aðrar liggja langt út í sænum — alla leið út í hafsauga.
Það var fólk á eynni ey — ekki ýkja langt undan strönd megin-
landsins. Það liafði einhverntíma flutzt þangað — það vissi ekkx
sjálft hvaðan eða hvernig. Það átti sér enga sögu. Þetta var fruni-
stætt fólk. Þó fannst því sjálfu, að það væri löngu orðið fullorðið
og vissi allt, sem vita mætti. Einkum voru það þó elztu spek-
ingarnir og töframennirnir, er svona langt voru leiddir. En þetta
fólk var enn ekki orðið fullorðið, síður en svo. Þó liafði það lært
að liagnýta sér eldinn og gera sér ófullkomin hreysi úr einhverjn
því efni, er liendi var næst. Báta hafði það lært að búa til; það
voru eintrjáningar, gerðir úr heilum trjábolum og liolaðir innan
á þann hátt, að eldur var notaður við smíðina. Þeir voru brenndir
innan. Málma þekkti það ekki. Föt þekkti það ekki; liafði aldrei
í manna minnum þurft þeirra með — það var alltaf svo lilýtt
í veðri. — Þar ríkti því sú tízka, að vera ekki í neinu utan yfir sér.
En svo fór að kólna í veðri, af einhverjum orsökum. Alll f°r
að verða svo ömurlegt. Gróður hreyttist og þverraði. Veiðin livarf-
Fólkið fór að verða svangt, og það skalf af kulda. Það reyndi að
finna sér eitthvað til skjóls, en það dugði ekki til. Þetta liafði
ekki þekkzt áður. Töframennirnir fengu við ekkert ráðið. Öllunr