Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1956, Side 62

Eimreiðin - 01.01.1956, Side 62
50 EIMREIÐIN Því ber ekki að neita, að fleiri hinna kunnustu rithöfunda í Noregi rita ríkismál en nýnorsku, en mál þeirra, sem ríkxs- málið skrifa, er oftast mjög blandað mállvskum, öll samtöl hjá sumum þeirra á hreinni mállýzku. En ef litið er á gild* höfundanna, standast þeir nýnorsku fullkomlega samanburð við hina. Á þessari öld hefur norsk ljóðlist verið með me>rl snillibrag en nokkru sinni áður, og er það ekki sízt að þakka nýnorsku skáldunum, jafnvel þó að ríksmálsmennirnir getl trompað út nöfnunum: Herman Wildenvey, Olaf Bull og Arnulf Överland, því að erfitt mundi reynast hlutlausum bók- menntafræðingi að halda því fram, að Tore Örjasæter, Olav Aukrust og Olav Nygard væru léttari á metunum. Ef vikið el að sagnaskáldunum, er hlutur nýnorskunnar ekki mun síðrr Hennar rnenn þurfa ekki að blikna, þó að Sigrid Undset sé nefnd. Hinn mikli snillingur, Naumudælingurinn Ola'' Duun, höfundur Júvíkinganna, merkustu ættarsögunnar, sem vér Norðmenn eigum, var jafnaldri Sigrid Undset sem skáld- Duun var lengi á orði sem Nobelsverðlaunahöfundur, e11 hann lézt á hátindi snilldar sinnar árið 1939. 2. Víðfrægastur þeirra skálda, sem nú skrifa á nýnorsku, el Tarjei Vesaas. Árið 1953 fékk hann ítölsk verðlaun, sem veita skal árlega fyrir bezta skáldverkið, er út hafi verið gefiö í Evrópu árið áður. Hann hlaut þau fyrir smásagnasafniö Vinclane. Síðasta skáldsaga Vesaas, Várnatt, kom út samtímlS á norsku, dönsku og sænsku. Er það mjög sjaldgæft, að skáld- ritum norskra höfunda sé slíkur sómi sýndur. Bókmennta- söguhöfundurinn Philip Houm lætur þess getið, að af sagna- skáldum, sem nú eru á lífi í Noregi, hafi vart nokkur verið hylltur jafneinróma og Vesaas. Og bókmenntafræðingurm11 Harald Beyer prófessor segir um Vesaas: „Hann er ekki att- hagaskáld, heldur jafnt og Duun skáld sinnar samtíðar á al- þjóðlegan mælikvarða." Vesaas er ótvírætt meira alhliða en nokkurt annað hinna núlifandi skálda Noregs. Hann hefur gefið út 28 bækur. Af þeim eru 18 skáldsögur, 4 ljóðabækur, 3 leikrit og 3 snta- sagnasöfn. Hann er gott ljóðskáld, og leikrit hans hafa fengi®

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.