Eimreiðin - 01.01.1956, Síða 68
56
EIMREIÐIN
táknrænu meistaraverkum, Kimen, Huset i mörkret og Bleike-
plassen, komst Vesaas upp á þann torvelda tind snillinnau
er hann nú stendur á sem skáld.
Vesaas hlaut mikið lof fyrir Dei svarte hestane, en ennþa
meiri hylli vann hann sér hjá ritdómurunum með sögunni
Fars reise, sem kom út árið 1930. Sú bók er fyrst af þel,n
fjórum, er fjalla um bóndann og stífluvörðinn Klas Dyregodt-
Hinar heita Sigrid Stallbrokk, Dei ukjende mennene °S
Hjarta höyrer sine heimlandstonar. í þessum sögum keintu
greinilega fram kjarninn í skáldskap Vesaas, sá boðskaptU’
að sérhver beri eftir getu ábyrgð á örlögum annarra manna-
Þarna er lýst manni, sem einmanaleiki og angist eru að gera
út af við, en annar maður bjargar honum, leggur honunr lið>
gefur honum nokkur spakleg orð í veganesti: „Þú ræður sjálf'
ur örlögum þínum.“ . . .
Allar þessar sögur eru yfirleitt raunverulegar að atburða
rás, en í þær er ofið rómantískum þráðum. Þær gerast í dal
einum. Eftir dalnum fellur á, sem heitir Lögur, og niður át-
innar lætur sífellt í eyrum lesandans. Smátt og smátt íxl
hann það á tilfinninguna, hvernig áin skiptir um tón eful
árstíðum og hvaða áhrif hún hefur á dalbúana. Lögurinn el
örlagavaldur þeirra. Hann brauðfæðir — og hann deyðir, °S
sífellt raular hann eins og í hugsunarleysi vísuna sína unr aH1
og ekkert. . . . En einn staður er það öðrum fremur í Leg111
um, sem hefur áhrif á dalbúana. Það er fljótið, sem myndaz1
hefur ofan við stífluna. Ef til vill rofnar hún einhvern dag
inn, og vatnið flæðir niður dalinn og veldur tjóni á lífi
eignum. Svo mikið er víst, að stíflan titrar, og titringurinn
hefur áhrif á taugar þeirra, sem verða hans varir. Hann di'eg
ur að sér hug allra, sem veiklyndir eru og uggandi. Mel111
tala digurbarkalega um það, að stíflan sé traust, en búast hálf
vegis við því, að þá og þegar sjái þeir flauminn ryðjast fram-
Hæfileiki Vesaas til að lýsa umhverfi persóna sinna er el11
af mestu máttarstoðum skáldskapar hans. Það eru einmitt oft
og tíðum lýsingar hans á umhverfinu, blæbrigði þess og áhn >
sem gera honum fært að komast eins langt í persónulýsing11111
og raun ber vitni. í þessum sögum náði hann sífellt meiri og
meiri leikni í áhrifamiklum lýsingum á umhverfi persona