Eimreiðin - 01.01.1956, Blaðsíða 74
62
EIMREIÐIN
og það var sýnt í Norska leikliúsinu fyrir fáum árum og þotu
mjög áhrifamikið. Annars er Ultimatum það af leikritun1
Vesaas, sem mest hefur þótt í spunnið.
Áður hefur verið rninnzt á smásagnasafnið Vindane. I þv|
eru 13 smásögur. Smásögurnar eru svo fjölbreyttar að efr"
og formi, að þær sýna ljóslega, hve Vesaas er fjölhæfur
hve áhugi hans er víðtækur. Þegar svo er á það litið, að sög'
urnar eru mjög listrænar, mundi mega segja, að í þessari bók
væri eitthvað handa öllurn, sem á annað borð bera eitthveV
skyn á bókmenntir. Það er vandgert að benda á þessa eð‘l
hina söguna og segja, að hún sé snilldarlegust. Þær eru yf11'
leitt svo vel gerðar, að við búið er, að einn segi þessa bera af
og annar hina. Þarna eru ágætar sögur urn börn, og víða gætu
skarprar og þó hlýrrar skopskyggni. Ein sagan fjallar 11111
óttann við hungur í veröldinni. Það er táknræn saga og iuj°8
stórbrotin og áhrifamikil. Önnur er um þann harmleik hvers-
dagslífsins, þegar annir og strit ganga af ástinni dauðri, °g 1
þeirri þriðju fyrirfinnum við ennþá einu sinni óttann við
það, sem yfir kynni að vofa. Sú saga, Fall, lieitir hún — gerisl
í þjótandi næturlest.
Við erum okkur öll þess meðvitandi, að nútímamaðuriu'1
hefur ástæðu til að óttast hið ægilegasta hrun. Lest þróunarinn-
ar hefur lengi þeytt okkur áfram með ógnarhraða í kolsvört11
náttmyrkri og gerir það enn, og við höfum ýmist fundið
vakna hjá okkur tilhneigingu til að þoka okkur að útgöngu'
dyrunum eða til að grípa í neyðarhemilinn.
Vesaas er traustur. Hann lætur ekki hugfallast gagnvar
öflurn tortímingarinnar fyrr en í fulla hnefana. Hans andleg1
þróttur og hans heita hjarta skipar honum á bekk með þenn
skáldum, er bæði vilja og megna að taka þátt í aðgerðununn
sem miða að því að afstýra hruninu mikla. Samvizka hans
nær til allrar veraldar, og hann á flestum norskum skálduin
meiri rétt á því, að á hann sé hlustað.
Guðmundur Gíslason Hagalin
þýddi.