Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1970, Qupperneq 8

Eimreiðin - 01.09.1970, Qupperneq 8
152 EI M R E13 IN íhaldssamur að eðlisfari og fjarri því að binda bagga sína sömu hnútum og samferðamenn, á hinn bóginn kemur fram, að hann mun lítt hafa fylgzt með þróun málvísinda á síðara helmingi 19. aldar. Ein af eftirlætishugmyndum Gröndals, og sú er hann oft kom að, var aðild Sæmundar fróða að Eddu. í Ströbemœrkninger og enn síð- ar í greinum þremur um Sæmundar Eddu°) leiðir hann líkur að því, að Sæmundur hafi safnað Eddukvæðunum. Ýmsar skýringar á orð- um og sérnöfnum í Eddu grundvallaði hann á þeirri gömlu kenn- ingu, að vagga mannkynsins hefði staðið í Asíu — og eru sumar þeirra allfurðulegar. Eddukvæðin taldi Gröndal ort á íslandi og færði þar fram til sönnunar skyldleika orða og setninga innbyrðis í kvæðun- um. Síðasta af hinum þremur Edduritgerðum Gröndals fjallaði um Sæmundar-Eddu og norræna goðafræði og kenningar þeirra Sofusar Bugges og V. Rydbergs um þau efni.7) Sú ritgerð er hógværari en hinar fyrri, en ber þess jafnframt menjar, að Gröndal hefur fylgzt allvel með á þessu sviði og lesið rit sumra hinna fremstu yngri fræðimanna á sviði Eddukvæðarannsókna og norrænnar ritskýring- ar, þeirra Hofforys, Mogks og enn fleiri. Gröndal hættir þó sem fyrr til að senda málfræðingum hnútur og er andvígur öllum kenningum Bugges og bollaleggingum um uppruna Eddukvæða. í ritgerðinni Um fornan kveðskap íslendinga og Norðmanna8) heldur Gröndal því fram, að fornmenn hafi ort kvæði sín eftir til finningu, en ekki einvörðungu eftir föstum og ákveðnum brag- reglum, enda ímyndun ein að nokkur veruleg rímkennsla hafi átt sér stað. í afmælisgrein um Gröndal áttræðan véfengir prófessor Finnur Jónsson að vísu, að slíkar hugmyndir hafi nokkurn tíma átt við rök að styðjast, og segir síðan: „Hitt er rétt hjá B. Gr. og það er það, sem hefur vakað fyrir honum, að vilja ekki kannast við, að allt eigi að vera keiprétt hjá öllum skáldum á öllum tímum. Það er nú víst, að það eru til ýmis afbrigði einkum hjá eldri skáldunum; sumir bragfræðingar álitu allt slíkt síðari tíma afbakanir; þar fóru þeir villir vega. — B. Gr. hefur fundið, að þetta var gerræði, hans „lieil- brigða skynsemi" lét á sér bera og vakti hann til andmæla. — Það er yfir höfuð að tala „hin heilbrigða skynsemi," sem B. Gröndal hefur allajafnan sýnt, þrátt fyrir öll hans skáldlegu ærsl og skrípalæti." 6) Sjá Gefn III og IV. 7) Sjá Tímar. Bókm.fél. 1892. 8) Sjá Tímar. Bókm.fél. 18S2.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.