Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1970, Blaðsíða 11

Eimreiðin - 01.09.1970, Blaðsíða 11
BENEDIKT GRÖNDAL 155 aðir voru um hundrað þúsund, áður en unnt yrði að hefja samn- ingu verksins. Árið 1885 ritaði Gröndal grein í Fjallkonuna og varði hann þar hendur sínar varðandi styrkveitingu, sem hann hafði hlotið til þjóðmenningarsögunnar frá Alþingi, og hefur víst einhverjum þótt sem lítill árangur sæist af styrknum. Gröndal gerir þarna grein fyrir vinnubrögðum sínum, tilhögun verksins, efnisflokkum, sem skipta tugum ef ekki hundruðum. Skulu hér tilnefndir nokkrir þeirra af handahófi: Búningar, gersemar, átrúnaðargripir, bygging- ar, húsbúnaður, húsgögn, mataræði, ölheita, skip hernaður, félags- líf, veizlur, bónorð, festar, greftranir, galdrar, tímatal, sjúkdómar, lækningar — svo að fátt sé nefnt, sem Gröndal hugsaði sér að verkið tæki til. Því miður auðnaðist honum ekki að framkvæma þetta stórvirki — hann lauk aldrei sjálfri söfnuninni. Um afdrif frumdraganna eða miðanna mun ekki fullkunnugt, en á Landsbókasafni eru minnis- ltækur, er sýna hvernig hann fór af stað með efnissöfnunina. Enn í dag er ekkert heildarverk af þessu tæi til hér á landi. Því skyldara er að minnast brautryðjendastarfs Benedikts Gröndals á sviði íslenzkrar menningarsögu og norrænnar. Hvert var þá viðhorf Gröndals sjálfs og samtíðarinnar til fræði- mennsku hans? Gröndal var tamara að varpa fram hugmyndum en rökstyðja þær. Sjálfur efaðist hann sjaldan um réttmæti og gildi hugmynda sinna og tilgátna. En víða kennir þess, að honum þykir þær liafa verið vanmetnar og fáir gefið þeim gaum. — Ósjaldan víkur hann í rit- gerðum að skýringum og öðrum atriðum, er hann hafi fyrstur bent á, en enginn tekið eftir eða tekið tillit til. í þessu mun viðhorf samtíðarinnar speglast að einhverju leyti. Hér skal þó að endingu vitnað til afmælisgreinar Finns prófessors Jónsson um Gröndal átt- ræðan, en }:>ar er svo að orði komizt um Edduritgerðir hans: „Þær eru fremur skáldskapur en vísindalegar rannsóknir, og er það ekki sagt til niðrunar. Þær eru ritaðar með sjaldgæfu hugmyndaflugi, lærdómi og fjöri og gaman þótti mér á fermingaraldri að lesa þessar ritgerðir — þótt ég nú sjái og viti nú betur en áður, hvað í þeirn er rétt eða gott, og hvað nú ekki þolir vísindalegan dóm.“ Þegar undan er skilin orðabókin Clavis poética má nú telja fræði- leg ritverk Gröndals að mestu úr gildi fallin og gleymd: Það stend- ur þó enn, sem um hann var sagt áttræðan: „Hann skildi öðrum fremur skáldskaparmál vort hið forna og anda þann, sem í því býr.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.