Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1970, Side 14

Eimreiðin - 01.09.1970, Side 14
158 EIMREIÐIN björtum bárutoppum og aðvör- unartónn brimsins, voru honurn jafnkunnug og lægðirnar í skap- gerð Jórunnar, en þær voru oft margar og stórar. En Jórunn var dugleg, kannski ekki lagleg. Hún átti hænsnabú inni í lítilli girðingu. Hænsnin hennar voru með ganda útlitinu. Virðulegur hani með skrautlegar stélfjaðrir og marglitar hænur. Og Jórunn hugsaði vel um hæns- in sín. Þau vantaði ekki mat né vatn. Hún gaf þeim þorskhrogn og kaffikorg. Enginn hani hafði heldur fallegri kamb en haninn hennar Jórunnar. Hrólfur gamli var árrisull. Það hafði hann alltaf verið. Hún treindist honum líka út í lífið gamla morgunbænin, sem hann hafði lært, þegar hann var lítill. „Að vera vel klæddur og kominn á ról.“ Á sama slaginu, nákværn- lega klukkan 6, þegar haninn hennar Jórunnar rixaði út á moldarflagið inn í girðingunni, tóku þeir báðir á móti morgn- inum. Haninn á öðrum fæti með virðtdegu gali, og Hrólfur gamli kom út á stéttina og gáði til veð- urs. Hann hélt venjulega á tó- bakspontunni í höndunum og horfði ýmist til himins eða út á sjóinn. Og ekki var hann alltaf ánægður með útlitið, uppi eða niðri. Hrólfur bar ekki mikil- mennsku utan á sér. Það var öðru nær. Hann var grannur og reng- lulegur með signar axlir. Það var líkast því að kul stæði í skeggið á honum, því að venjulega stóð það út í loftið. Hann gekk ævin- lega álútur með hendur á baki og virtist ætíð vera að leita að einhverju. Og ekki var fínheitunum fyrir að fara. Oltast í fötum, sem hún Jórunn var búin að setja á meda- líurnar sínar, ripp og krun- sprang, eins og Hrólfur orðaði það. Hún var ekki vön að Hggja í leti hún Jórunn. Það mátti hún eiga. Enda alin upp við annað, þótt að Hrólfur væri stundum að hotta á liana. Hann var vanur að færa henni ofurlitala kaffilögg í rúrnið á morgnana. Það voru fríðindi, sem hans eigin skapgerð hafði fundið út, en Jórunn skildi ekki, hvort stafaði af góðu eða illu. Ójú, hann kom með þetta inn að bólinu, hljóðlega og fyrirhafn- arlítið, með sykurögnina milli fingranna, segjandi sem svo. „Ertu að hugsa um að koma þér á lappir kona.“ Og víst hafði Jórunn hugsað. Það var ekki á meðfæri Hrólfs að sjá allar þær hugmyndir, sem þetta litla konuhöfuð hafði kom- izt í kast við. En Hrólfur var eng- inn draumamaður, og eins og gömlu, slitnu fötin hans voru veruleiki, eins var hann sjálfur, hrjúfur og kaldur.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.