Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1970, Side 15

Eimreiðin - 01.09.1970, Side 15
BLÁA SKELIN 159 Og hún Jórunn vaknaði ætíð inn í þennan sama heim, þar sem stór og klunnaleg hendi rétti henni bolla með blárri rönd. En Jórunn hugsaði, það liefði Hrólfur mátt vita, um allt smátt og stórt milli hirnins og jarðar. Um hænsnin, lnisið og bátinn. Hún hugsaði um fiskinn í hjall- inurn, hrognkelsin og Hrólf. Unr allt, sem þau áttu af þessa heinrs gæðunr. Og Jórunn var ekki eyðslusöm. Það var nú eittlrvað annað. Geynrdi sápuvötnin á gólfin, bak- aði öll brauð og Hrólfur gekk í heimatilbúnum ullarfötum. Svona var hún inn við beinið, enda þótt að Hrólfur setti í hana löppina undir sænginni, útblás- inn af vonzku yfir eyðzlu, sem engin var. En það var stórmál á ferðum, er saga þessi gerðist. Og það varð Jórunn að viðurkenna, að framnri fyrir því hafði lrún orðið að fella seglin, eins og Hrólfur gamli orðaði það. Hún var skilningslaus og orð- vana gagnvart því. Það var í fyrsta skipti á ævinni, að Jórunni brást þrek til að tala og þá var langt gengið. Það var nefnilega litla, hálf- skakka lrúsið þeirra. Það stóð í vegi fyrir skipulaginu. Borgaryf- irvöldin heinrtuðu að fjarlægja það nreð öllu saman, hænsnum, hjalli, veiðarfærum og báti. Það er ekki gott að lýsa tilfinn- ingunr fólks, senr stendur í svona vandanráli. Það er vond afstaða. Margt hafði lrann Hrólfur ganrli reynt um dagana, en ekkert þessu líkt. Ójá, þarna var vei lýst ótuktar- skapnum og ónáttúrunni, sem nrest ber á nú til dags í öllu snráu og stóru. Að reka fólk út úr sínu eigin lrúsi, af sínu eigin landi. Fyrr mátti nú rota en dauðrota. Nei, hann Hrólfur gamli ætl- aði sko ekki að fara, ekki að láta í minni pokann. Það var einn hlutur viss í Jressu máli. Hann ætlaði að vera Hrólfur Árnason, eins og lrann lrafði alltaf verið, nreð munninn fyrir neðan nefið og lrendur á réttum stað. En hún Jórunn var sannarlega ekki öfundsverð Jressa dagana. Þarna var hún búin að taka hverja einustu tusku á heimilinu til að vefja utan um bolla, skálar og glös, allt brothætt. Betri bux- urnar af honunr Hrólfi, undir- buxur, sokka og treyjur, allt var lrókstaflega úttroðið til verndar og öryggis. Nú, það vissi enginn, hvenær ósköpin dyndu yfir. Lofthamar og pressubíll gátu komið á hverri stundu og molað littla húsið nið- ur. En þau ætluðu ekki að ganga út gömlu hjónin, ekki frekar en Njáll og Bergþóra. En lrún Jórunn var ekki leng- ur sjálfri sér lík, sem alltaf hafði

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.