Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1970, Síða 19

Eimreiðin - 01.09.1970, Síða 19
BLAA SKELIN 163 En svo hafði Mangi reist skúr- inn, lítinn og viðhafnarlausan. Hann stóð þó fyrir sínu, líkastur kistu í laginu, með rauðu loki og gulum hliðum. Hann þurfti ekki að vera neitt fínn og áberandi. Aðeins hlýr og traustur, með út- sýn til sólar og liafs, og það hafði honum tekizt. En svo hafði Hrólfur kornið mörgum árum seinna og reist litla timburhúsið sitt. Ónei, Mangi gamli liafði aldrei sýnt ónot eða yfirgang um dagana. Heldur hitt, að honum hafði þótt gaman að sjómennskulífi Hrólfs og leyft honum að færa út kví- arnar. „Og svo eru þeir að grobba af hjálpsemi við aldrað fólk. Reka gamla eyrarvinnukarla út á klak- ann“, mælti Mangi gamli. „Mað- ur fer nú að efast um kristilegt innræti". „Ó, þetta jDykir víst gott handa okkur, koma með loftpressur og mölva allt í sundur“, anzaði Hrólfur gamli í mæðutón. „Sum- ir segja að hér eigi að rísa hótel fyrir útlenzka ríkisbubba, sem vilja skoða landið okkar eða fá það lánað. Við eigum margt til að sýna, t. d. hesta og hunda og skinnið af kindunum okkar, þótt enginn vilji vera bóndi í sveit. Nú, aðrir segja, að hér eigi að byggja minkabú. Það er vel trú- legt. Það er sem ég sjái blessaða fuglana okkar hér á ströndinni innan um þann óþverra“, mælti Hrólfur gamli. „Og það verða víst áreiðan- lega fleiri en þeir, sem rnega vara sig. Það getur farið svo, að Jaað þjóti í fleirum en loftpressu. Ekki er allt sem sýnist. Það sann- ast hér. Kannski að maður eigi eitthvað í fórum sínum til að minnka í þeirn mesta hrokann“, anzaði Mangi gamli. Þeir voru að pæla í gegnurn blöðin lians Manga gamla á lög- mannsskrifstofunni. Og víst voru J^au komin til ára sinna, ekki síð- ur en íslenzku handritin. Fyrir utan eyðandi tönn ellinnar báru þau minjar um margt yfirþyrm- andi, t. d. tóbaks- og kaffibletti og þan lyktuðu af framandlegri angan, sem venjulega sezt á milli gamalla blaða. En þau voru læsi- leg, og það sem mesta furðu vakti var, að Jiau báru sýslu- mannsstimpil og hljóðuðu upp á löglegan eingarétt Magnúsar Sumarliðasonar á Tanganum, Mölina, Kambinn og uppsátrið; sömuleiðis kofann, lnisalóðina og garðinn og gatan ])ar sem húsin hans Hrólfs stóðu. Og sem hann stóð þarna í full- um rétti frammi fyrir þessum lagavöiðum, þá sagði hann Jaeim álit sitt í tónhæð, sem reiðir og móðgaðir menn nota. „Svo liald- ið þið, að Jrið getið komið eins og þjófar um nótt, brotið og braml-

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.